Menning

Skoraði sjálfa sig á hólm

"Ég var í ballett í þrettán ár en ætlaði mér aldrei að verða dansari, þetta var meira svona grafalvarlegt hobbý," segir Margrét Bjarnadóttir sem heldur til Hollands í haust í danshöfundanám. "Fyrir fjórum árum hætti ég í dansinum og fór aðeins að ferðast um heiminn og snúa mér að allt öðrum hlutum. Ég var svolítið hrokafull og gaf út stórar yfirlýsingar þegar ég hætti að dansa. Mér fannst þá frekar hallærislegt að læra að verða danshöfundur og fannst að ég gæti allt eins stofnað bílskúrsdanshóp og gert allt upp á eigin spýtur ef ég vildi leggja þetta fyrir mig. Það sama fannst mér gilda um nám í myndlist og skapandi skrifum en svo þroskaðist ég sem betur fer og ákvað skora mig á hólm." Margrét sótti um dansskóla í Amsterdam og Arnhem. "Ég ætlaði upphaflega bara að sækja um einn skóla í Amsterdam en svo opnaði ég spakmælabók, kannski til að leita svara. Ég lokaði augunum og benti á spakmæli frá Hawai sem hljómaði svona. "Til eru fleiri en einn dansskóli," segir Margrét og hlær. "Maður verður svo hjátrúarfullur í svona ferli og mér fannst ekki annað hægt en að taka mark á bókinni fyrst hún setti þetta fram á svona einfaldan hátt. Ég sótti því líka um skóla í Arnhem í Hollandi og ætla að fara þangað jafnvel þó ég sé ekki búin að fá svarið frá Amsterdam. Það er mikið að gerast í listum í Hollandi og ég hlakka til að fá að velta mér upp úr klisjum, gera mistök og halda áfram að þroskast í námi í nýju landi."





Fleiri fréttir

Sjá meira


×