Olís-deild karla

Olís-deild karla

Leikirnir




    Fréttir í tímaröð

    Fréttamynd

    „Þetta er á­kveðin skák“

    „Ákefð í 60 mínútur, ekki í 45 mínútur. Það fannst mér vera lykillinn að þessu,“ sagði Aron Rafn Eðvarðsson, markvörður Hauka, sem átti stórleik í marki sinna manna í kvöld þegar Haukar jöfnuðu í einvígi sínu gegn FH í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.

    Handbolti
    Fréttamynd

    „Þetta er marg­fræg klisja“

    „Þetta var bara gríðarlega erfiður leikur eins og við vissum fyrirfram,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, eftir sigur liðsins gegn Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í kvöld.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Upp­gjörið: Valur - KA 39-21 | Al­gjör slátrun á Hlíðar­enda

    Að vera slátrað er hvorki geðsleg né virðuleg lýsing á atburðum sem gerast í íþróttakappleikjum. Hins vegar er hægt að nota fá önnur orð um leik Vals og KA í fyrsta leik liðanna í undanúrslita einvígi liðanna í handbolta, þar sem spilamennska KA var hvorki geðsleg né virðuleg. Lokatölur á Hlíðarenda 39-21 fyrir Val, sem slátraði KA.

    Handbolti
    Fréttamynd

    „Þeir refsa fyrir öll mis­tök og þeir refsuðu vel í dag“

    „Þetta var virkilega vont. Við bara grófum okkar eigin gröf með því að byrja leikinn afleitlega sóknarlega og komast ekki í takt í sókn,“ sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA í handbolta, eftir risatap gegn Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi þeirra á milli. Lokatölur 39-21 fyrir Val.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni

    Stjarnan er komið áfram í úrslitaeinvígið í umspili um laust sæti í Olís deild karla eftir sigur á Fjölni í oddaleik í Garðabæ í dag. Lokatölur 30-27 Stjörnunni í vil, liðið mætir liði Harðar frá Ísafirði í úrslitaeinvíginu. 

    Handbolti
    Fréttamynd

    „Allt í einu var munurinn orðinn allt­of mikill“

    Afturelding féll úr leik í úrslitakeppni Olís-deildar karla í kvöld eftir 32-24 tap gegn Haukum í oddaleik á Ásvöllum. Stefán Rúnar Árnason, þjálfari Aftureldingar, hrósaði Haukum  fyrir vel útfærðan leik en sagðist jafnframt stoltur af sínu liði.

    Sport
    Fréttamynd

    Óttaðist enda­lokin fyrir þrettán árum

    Rúnar Kárason ákvað fyrir mörgum mánuðum að leikmannaferlinum skyldi ljúka í vor þó tilkynningin hafi ekki orðið opinber fyrr en í gær. Hann kveðst ekki nógu athyglissjúkur fyrir langa kveðju.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Stjarnan svaraði fyrir sig og knúði fram odda­leik

    Karlalið Stjörnunnar í handbolta hafði betur gegn Fjölni öðrum leik liðanna í umspili fyrir sæti í Olís deildinni á næsta tímabili. Lokatölur sex marka sigur Stjörnunnar, 26-32. Staðan í einvíginu er nú jöfn 1-1 og oddaleikur framundan.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Ágúst úr Kórnum í Krikann

    Handboltamaðurinn Ágúst Guðmundsson mun spila með FH frá og með næsta tímabili. Hann kemur til Hafnarfjarðarliðsins frá HK sem hann hefur leikið með allan sinn feril til þessa.

    Handbolti