
Tók aldrei mark á svartsýnisröddum
Wow Air skilaði 1,5 milljarða króna hagnaði á síðasta ári.
Klinkið er spjallþáttur um viðskipti og efnahagsmál.
Wow Air skilaði 1,5 milljarða króna hagnaði á síðasta ári.
Ísleifur Þórhallsson hjá Senu segir að Sena hafi skoðað að fá kanadíska rapparann Drake til landsins en fyrirtækið er með mörg net úti hverju sinni.
Þorsteinn B. Friðriksson, stofnandi og forstjóri Plain Vanilla sem gefur út Quiz-Up sagði í Klinkinu í Íslandi í dag á Stöð 2 að það hafi verið hálfgert menningarsjokk að fara til Kína að vinna að útgáfu leiksins þar.
Sóknarfæri eru fyrir fjarskipta- og afþreyingarfyrirtæki að setja á markaðinn efnisveitur sambærilegar Netflix með íslensku sjónvarpsefni. Þetta segir Stefán Sigurðsson forstjóri Vodafone.
Áhugi er fyrir því meðal fagfjárfesta að taka þátt í byggingu nýs Landspítala með eignatryggðri fjármögnun. Þá myndi kostnaðurinn vegna spítalans ekki lenda á ríkisreikningi.
Sólveig Eiríksdóttir, einn af eigendum Gló, segir að mikil og jákvæð viðbrögð og jákvæðar umsagnir útlendinga á TripAdvisor hafi hreyft við eigendum og fengið þau til að skoða opnun Gló í útlöndum.
Hundruð frumkvöðla og alþjóðlegra fjárfesta frá öllum heimshornum voru saman komnir í Hörpu þegar Startup Iceland ráðstefnan var haldin í þriðja sinn. Bala Kamallakharan, stofnandi Startup Iceland, segir að stuðningur forseta Íslands hafi skipt miklu máli fyrir ráðstefnuna.
Greipur Gíslason verkefnastjóri hjá Hönnunarmars ræddi stöðu hönnunar á Íslandi í Klinkinu.
Sjóvá verður átjánda skráða félagið á almennum hlutabréfamarkaði Kauphallarinnar að loknu hlutafjárútboði félagsins sem hefst á morgun og lýkur á mánudag.
Lögmennirnir Ragnar H. Hall og Gestur Jónsson fengu eina milljón króna í réttarfarsekt hvor fyrir að segja sig af tilnefnislausu frá Al-Thani málinu sem verjendur sakborninga við dómsuppkvaðningu í Héraðsdómi í dag.
Hluthafar Plain Vanilla höfnuðu nýverið tólf milljarða yfirtökutilboði bandaríska tölvuleikjafyrirtækisins Zynga Games.
Verðmæti tölvuleikjafyrirtækisins Plain Vanilla sem gaf út leikinn Quiz Up fyrir iPhone og iPad hleypur núna á milljörðum króna. Hlutafjáraukning er í undirbúningi. Þá er unnið að gerð Quiz Up fyrir Android-stýrikerfið.
Tískufyrirtækið Jör er í sókn en í næsta mánuði hyggst fyrirtækið kynna nýja kvenfatalínu og sérstaka deild með kvenfatnaði í verslun Jör á Laugavegi. Í kjölfarið á síðan að ráðast í sókn á erlenda markaði.
Katrín Olga Jóhannesdóttir, ein valdamesta konan í íslensku viðskiptalífi, segir að leiðandi fyrirtæki á íslenskum markaði séu ekki í samkeppni innanlands heldur við alþjóðleg stórfyrirtæki.
Creditinfo Group, áður Lánstraust, hefur hafið starfsemi í Súdan og Afganistan. Alþjóðabankinn samdi við fyrirtækið um uppsetningu á fjárhagsupplýsingakerfi með upplýsingum um lánstraust í Afganistan þrátt fyrir að fyrirtækið hefði átt hæsta tilboð í útboði.
Helsti sérfræðingur Norðmanna um auðlindir Jan Mayen-svæðisins, jarðfræðingurinn og olíuforstjórinn Terje Hagevang, hefur ráðið sig til starfa fyrir íslenska félagið Eykon Energy.
Starfskjör bankastjóra Landsbankans og helstu stjórnenda skulu vera samkeppnishæf við kjör stjórnenda í stærri fyrirtækjum og á fjármálamarkaði, en þó ekki leiðandi. Þetta kemur fram í nýrri starfskjarastefnu Landsbanka Íslands sem samþykkt var á aðalfundi bankans í dag.
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir að ræða þurfi alla raunhæfa kosti Íslands í gjaldmiðilsmálum til hlítar. Hún segir myntsamstarf við Norðmenn eitthvað sem þurfi að skoða í þessu samhengi.
"Ísland er lítið land, en risi á sviði jarðhita,“ segir Dr. Sri Mulyani Indrawati, framkvæmdastjóri Alþjóðabankans og fyrrverandi fjármálaráðherra Indónesíu. Hún telur sérþekkingu á Íslandi, á sviði jarðhitanýtingar og nýtingar á endurnýjanlegum orkugjöfum, geta hjálpað ríkjum heims að takast á við miklar áskoranir á sviði orkumála sem heimurinn stendur nú frammi fyrir.
"Það skiptir máli að við látum vita af okkur, og hvað við höfum upp á að bjóða," segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, um þau tækifæri sem Ísland, og ekki síst Norðurland, standi frammi fyrir vegna vaxandi umsvifa á Norðurslóðum.
"Fólk finnur fyrir ókostum krónunnar á eigin skinni. Það er ekki kostur í mínum huga að vera með krónu í höftum, það einfaldlega gengur ekki upp,“ segir Þórlindur Kjartansson, hagfræðingur og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Sjálfstæðisflokksins. Þórlindur er gestur nýjasta þáttar Klinksins og ræðir þar meðal annars um tillögur nefndarinnar sem hann stýrir, og hefur lagt fram fyrir landsfund Sjálfstæðisflokksins 24. febrúar nk.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að sala á raforku um sæstreng til Evrópu gæti opnað á tækifæri fyrir bændur og hinar dreifðu byggðir landsins.
Íbúar á landsbyggðinni eyða umtalsvert meira fé í matarinnkaup í búðum, heldur en íbúar á höfuðborgarsvæðinu, og stór hluti almennings á í erfiðleikum með að láta enda saman um hver mánaðarmót. Þetta er eitt af því sem á lesa út úr gögnum, sem fréttastofa fékk hugbúnaðarfyrirtækið Meniga til þess að taka saman.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir að eftir hrunið hafi bankarnir haldið of mörgum fyrirtækjum í rekstri sem ekki voru lífvænleg og hefðu frekar átt að fara í gjaldþrot.