Um skoðana­greinar á Vísi

Vísir birtir skoðanagreinar. Greinar eru á ábyrgð þeirra sem þær rita.

Greinar skulu standast almennar kröfur um málfar, stafsetningu, lengd, læsileika og sannleiksgildi staðhæfinga.

Greinar mega ekki vera í andstöðu við lög, þar meðal ákvæði um hatursorðræðu og ærumeiðingar. Ekki skulu birtar greinar ef ljóst þykir að tilgangurinn sé að auglýsa vöru eða þjónustu.

Skoðanahluti Vísis er vettvangur skoðanaskipta en ekki vettvangur fréttatilkynninga, ræða, fræðigreina eða ályktana. Þá skulu greinar birtar í nafni einstaklinga, en ekki fyrirtækja, stofnana eða samtaka. Heimilt er að geta viðburðar, sem höfundur vill láta vita af, en það getur þó ekki verið höfuðinntak greinarinnar.

Greinar skal senda á netfangið greinar@visir.is. Með grein skal fylgja titill og mynd af höfundi.

Vísir áskilur sér allan rétt til þess að forgangsraða skoðanagreinum, hafna greinum, til dæmis þeim sem lýsa síendurteknum skoðunum höfundar, og að taka endanlega ákvörðun um birtingu einstakra greina.

Greinar eru að jafnaði ekki fjarlægðar af vefnum eftir birtingu.