Menning

Syngja á afmælistónleikum í London

Karlakórinn Fóstbræður ætlar að verða við beiðni Sameinuðu þjóðanna um að koma fram á tónleikum í Royal Albert Hall í Lundúnum þann 16. október í haust.

Efnt verður til tónleika í tilefni 60 ára afmælis Sameinuðu þjóðanna og munu fjölmargir heimsfrægir listamenn úr flestum heimsálfum koma fram en þó er það ekki að fullu frágengið hvaða listamenn það verða. Sony-fyrirtækið ætlar að gefa út DVD-disk með upptökum frá tónleikunum og dreifa þeim um allan heim og mun ágóðinn renna til góðgerðastarfa. Einnig mun breska sjónvarpsstöðin BBC sýna beint frá tónleikunum og svo verður völdum köflum dreift til sjónvarpsstöðva víða um heim.

Það var því ekki annað að gera fyrir blaðamann en að spyrja Eyþór Eðvarðsson formann Fóstbræðra hvort þeir væru búnir að "meika" það. "Hógværð er nú aðalsmerki okkar Fóstbræðra en dæmi nú hver fyrir sig þegar þér er boðið að koma fram í Royal Albert Hall á tónleika sem fara svo í dreifingu á heimsvísu."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×