Átök og innbyrðis deilur meðal ástæðna afsagnar 17. júní 2006 16:24 Halldór Ásgrímsson kveður eftir ríkisráðsfund á fimmtudag. MYND/Valgarður
Átök og innbyrðis deilur í Framsóknarflokknum eru meðal ástæðna þess að Halldór Ásgrímsson hættir í pólitík að mati Björns Inga Hrafnssonar, fyrrverandi aðstoðamanns hans. Björn Ingi sagði þetta í þættinum Skaftahlíðinni á NFS í dag.Það fór ekki fram hjá neinum að það var glaður Halldór Ásgrímsson sem hætti sem forsætisráðherra á fimmtudaginn var. Hann var spurður að því við það tilefni hver væri hin raunverulega ástæða þess að hann væri að hætta í stjórnmálum. Halldór svaraði því til að margar ástæður væru fyrir því. Hann hefði talið að þetta væri rétti tíminn til að hætta og hægt væri að ræða um þetta mál í nokkra daga viðtali. Aðspurður hvort hann væri að hugsa um sig eða flokkinn með ákvörðuninni sagði Halldór að hann hugsaði um báða.Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Halldórs og oddviti framsóknarmanna í borgarstjórn, segist telja að það hafi ráðið úrslitum um ákvörðun Halldórs að hann hafi ákveðið að gefa ekki kost á sér eftir þetta kjörtímabil. Það hefði verið heilmikil ákvörðun. Þá hefði hann þurft að ákveða hvenær hann hætti til þess að ný forysta sem tæki við hefði nægan tíma til að undirbúa þingkosningar.Björn Ingi sagði einnig að hann væri viss um að deilurnar innan flokksins hefðu tekið mjög á Halldór og hann hefði tekið það mjög nærri sér.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Innlent Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Erlent Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Innlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Innlent Trump vann öll sveifluríkin Erlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Fleiri fréttir Stöðvun megi rekja til klúðurs og skorts á fjármagni Ótryggðir bændur Ár frá rýmingu í Grindavík: „Með mestu hamförum sem riðið hafa yfir Ísland“ Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Ár frá mestu hamförum síðari tíma og útboðshlé hjá Vegagerðinni Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Kyrrstaða í vegaframkvæmdum, sigur Trumps og kosningabaráttan framundan Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Ætlar 1750 kílómetra á þrektækjum á einni viku í minningu vina Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Engin miðlæg skráning slysa í ferðaþjónustu Yazan og fjölskylda leita að nýju húsnæði Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Grunaður um sölu fíkniefna og brot á útlendingalögum Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Lögreglan bannaði bjór á B5 Leikskólastarfsmenn í Hafnarfirði greiða atkvæði um verkfall Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands Bein útsending: Sigmundur kynnir innihaldið Öryrkjar fá 1,7 skattfrjálsa milljarða Ætla ekki að slíta viðræðum Engin ákvörðun um hvalveiðar og maurasýrumengun á Bíldudal Kallar eftir sams konar úrræði og Breivik og árásarmaður hennar sæta Bjartsýn eftir fund í Virginíu vegna Söndru sem afplánar 37 ára dóm Helmingi þætti óeðlilegt ef Bjarni gæfi út hvalveiðileyfi Þúsund lítrar af sýru láku á Bíldudal Ríkisstjórnin bjó sjálf til flóttamannavandamál Tveir handteknir eftir hópslagsmál Mansalsmál Gríska hússins: Vann sjö daga í viku hverri og svaf í kjallaranum Sjá meira