Menning

Verk Sigtryggs í New York

Verk Sigtryggs, Herjólfur er hættur að elska, verður leiklesið á sviði í New York fimmtánda nóvember.fréttablaðið/vilhelm
Verk Sigtryggs, Herjólfur er hættur að elska, verður leiklesið á sviði í New York fimmtánda nóvember.fréttablaðið/vilhelm

Leikrit Sigtryggs Magnasonar, Herjólfur er hættur að elska, verður leiklesið á alþjóðlegri leiklistarhátíð sem verður haldin 15. til 16. nóvember í New York.

„Það var haft samband við mig í sumar og ég spurður hvort ég ætti verk sem hefðu verið þýdd á ensku," segir Sigtryggur. „Ég sendi þeim síðasta verkið mitt Yfirvofandi og líka Herjólfur er hættur að elska og þau vildu fá að setja það upp."

Sigtryggur flýgur til New York í næstu viku til að vera viðstaddur hátíðina, þar sem leikritið verður flutt á besta tíma, eða klukkan 20 á laugardagskvöldi. Eftir leiklesturinn mun hann svo taka þátt í pallborðsumræðum.

Sigtryggur játar að um mikinn heiður sé að ræða fyrir sig. „Mér finnst það afskaplega mikill heiður að fá svona tækifæri til að heyra þetta lesið á sviði í New York. Þetta er bara gaman og líka gott tækifæri að heyra og sjá verkið á útlensku."

Herjólfur er hættur að elska var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2003 við góðar undirtektir. Verkið Yfirvofandi var síðan sýnt á Listahátíð í Reykjavík á síðasta ári. Fyrir það var Sigtryggur tilnefndur til Grímuverðlaunanna sem leikskáld ársins.

Upptökur eru einmitt að hefjast í Útvarpsleikhúsinu á Yfirvofandi þar sem Edda Arnljótsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson og Jörundur Ragnarsson fara með aðalhlutverkin. - fb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×