Innlent

Jóhanna skipar starfshóp um siðareglur ráðherra

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 17. mars skipað starfshóp sem ætlað er að semja drög að siðareglum fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, er formaður starfshópsins.

Hópnum ber að hafa hliðsjón af sambærilegum siðareglum sem settar hafa verið í nágrannalöndum Íslands sem og nýsamþykktum reglum forsætisnefndar Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings.

Jafnframt skal starfshópurinn semja drög að siðareglum fyrir embættismenn og aðra starfsmenn stjórnsýslu ríkisins. Hópnum ber að vinna í samráði við stéttarfélög starfsmanna er starfa innan stjórnsýslu ríkisins og skal vinna hans meðal annars byggja á viðmiðum um góða starfshætti ríkisstarfsmanna sem fjármálaráðuneytið gaf út 24. janúar 2006 og leiðbeiningum Evrópuráðsins og OECD um þetta efni.

Auk Páls sitja Halldóra Friðjónsdóttir, sérfræðingur í fjármálaráðuneytinu, og Jón Ólafsson, prófessor og deildarforseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst, í starfshópnum.

Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum til forsætisráðherra eigi síðar en 15. september næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×