Innlent

Harmar að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við framlögum frá Neyðarlínunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Andri Óttarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segist harma þau mistök sem urðu þegar að flokkurinn tók við fjárframlögum frá Neyðarlínunni. Í yfirlýsingu sem Andri hefur sent frá sér segir hann að framlagið hafi þegar verið endurgreitt og muni öll framlög sem stangist á við lög um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra verða endurgreidd.

Yfirlýsing Andra er svohljóðandi:

„Ríkisendurskoðun birti nýverið í fyrsta sinn útdrátt úr uppgjöri stjórnmálaflokka í samræmi við ákvæði laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Lögin voru sett á þingi í lok árs 2006 og stóðu allir flokkar að setningu laganna. Með þeim voru gerðar mjög róttækar breytingar á fjármálum flokkanna, m.a. með því að setja skýrar kröfur um upplýsingaskyldu og gagnsæi, sem og ákvæði um hámarksframlag til flokka og skorður við því hverjir megi láta slík framlög af hendi rakna.

Í ljós hefur komið að flestir flokkanna fóru á svig við ákvæði laganna hvað það varðar að þiggja framlög frá fyrirtækjum eða félögum í opinberri eigu. Sjálfstæðisflokknum urðu á nokkur slík mistök árið 2007 og veitti flokkurinn þannig viðtöku framlögum sem hann hefði með réttu átt að hafna þar sem um var að ræða félög í meirihlutaeigu hins opinbera. Í 6. gr. laganna er kveðið á um að slíkum aðilum sé óheimilt að styrkja stjórnmálaflokka.

Fyrir hönd flokksins harma ég þessi mistök. Framlagið frá Neyðarlínunni hefur þegar verið endurgreitt og munu öll framlög sem stangast á við lögin verða endurgreidd til þeirra sem þau greiddu á sínum tíma. Að sama skapi munum við herða eftirlit og yfirfara verkferla í tengslum við viðtöku framlaga til þess að ganga úr skugga um að framlög komi frá aðilum sem hafa heimild lögum samkvæmt til þess að styrkja stjórnmálaflokka."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×