Innlent

Skapa verður traust á milli almennings og stjórnmálamanna

Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
„Við stöndum frammi fyrir því að skapa verður traust að nýju á milli stjórnmálamanna og almennings. Það varð trúnaðarbrestur í vetur og þessi nýjasta uppákoma hjá Sjálfstæðisflokknum var ekki til að bæta úr því,“ segir Katrín Júlíusdóttir þingmanns Samfylkingarinnar.

Katrín, Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og Dögg Pálsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, voru gestir í þætti Sigurjóns M. Egilssonar, Sprengisandi, á Bylgjunni í dag.

Katrín sagði mikilvægt að stjórnmálamenn vinni sér að nýju traust meðal almennings. Hún sagði ekki hægt að bera fjárstyrki Samfylkingarinnar saman við ristastyrki Sjálfstæðisflokksins. Samanlögð upphæð styrkjanna væri minni en risastyrkirnir. Þá benti hún á að formaður flokksins, Jóhanna Sigurðardóttir, hafi 14 sinnum lagt fram frumvarp þess efnis að bókhald stjórnmálaflokkanna væru opin.

Dögg sagði til fyrirmyndar að Þorsteinn Jónsson og Steinþór Gunnarsson hafi stigið fram og sagst hafa aflað styrkjanna frá FL Group og Landsbankanum. Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið í bágri fjárhagsstöðu og reglur hafi verið þrengdar. Á sama tíma hafi menn freistast til þess að laga fjárhag flokksins sem er bagalegt að mati Daggar. Menn sýndu með því dómgreindarskort.

Eygló sagði að það liggi fyrir að Framsóknarflokkurinn vilji upplýsa um þá styrki sem flokkurinn hlaut 2006. Verið sé að vinna að því að fá samþykki fyrirtækja sem styrktu flokkinn til að birta upplýsingarnar. Jafnframt benti Eygló að flokkurinn hafi strax veitt upplýsingar um heildarupphæð fjárstyrkja og hversu hár hæsti styrkurinn var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×