Innlent

Endurgreiði styrkinn frá Neyðarlínunni

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að afþakka 300 þúsund króna framlag sem Neyðarlínan veitti flokknum árið 2007 og endurgreiða það.

Ríkisendurskoðun birti á föstudaginn útdrætti úr ársreikningum stjórnmálaflokkanna 2007. Þar kom meðal annars í ljós að Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 300 þúsund krónur. Neyðarlínan var ekki orðið opinbert hlutafélag þegar flokkurinn falaðist eftir framlaginu en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins.

„Mín skoðun er sú að opinbert hlutafélag eins og Neyðarlínan eigi ekki að styðja stjórnmálaflokka og að stjórnamálaflokkar eigi ekki að taka við styrkjum frá félögum í eigu hins opinbera," segir Sigurður í pistli á heimasíðu sinni.

Jafnframt telur Sigurður að Framsóknarflokkurinn eigi að endurgreiða 90 þúsund króna framlag frá utanríkisráðuneytinu. Það sama eigi við um Samfylkinguna og Vinstri græna sem fengu, auk Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins, fjárstyrki frá Íslandspósti hf. sem sé í opinberi eigu.

Sigurður bendir á að fjárframlög ríkisins til stjórnmálaflokkanna fyrir árið 2007 hafi verið samtals rúmlega 425 milljónir króna. „Ríkið styrkir starfsemi stjórnmálaflokkanna afar ríflega með beinum fjárframlögum, eins og hér hefur verið rakið. Viðbótarframlög frá félögum og stofnunum í eigu hins opinbera eiga ekki að viðgangast, enda koma þau úr sömu vösum og beinu ríkisframlögin, þ.e. úr vösum skattgreiðenda."

Pistil Sigurðar er hægt að lesa hér.






Tengdar fréttir

Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn

Opinbera hlutafélagið Neyðarlínan ohf greiddi Sjálfstæðisflokknum þrjúhundruð þúsund krónur í framlag til kosningabaráttu flokksins fyrir síðustu kosningar. Hámarks framlag til stjórnmálaafls eru þrjú hundruð þúsund krónur. Athygli vekur að ríkissjóður á 73,6 prósent í Neyðarlínunni, restin skiptist á milli Reykjavíkurborgar, Landsvirkjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur.

Sjálfstæðisflokkur braut lög

Sjálfstæðisflokkur braut lög þegar hann veitti þrjú hundruð þúsund króna styrk frá Neyðarlínunni viðtöku. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að honum hafi ekki verið kunnugt um að styrkveitingin væri lögbrot. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Utanríkisráðherrann Valgerður styrkti eigin flokk

Utanríkisráðuneytið styrkti Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur árið 2006 samkvæmt gögnum Ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka. Þá var Framsóknarkonan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra en hún gengdi því embætti frá 2006-2007.

Neyðarlínan var í meirihlutaeigu ríkisins

Neyðarlínan var ekki orðinn opinbert hlutafélag þegar Sjáfstæðisflokkurinn falaðist eftir framlagi til flokksins en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins.

Ungir Framsóknarmenn fengu styrk Valgerðar

„Þessu styrkur var fyrir norræna ráðstefnu ungs fólks sem Samband ungra Framsóknarmanna áttu aðild að, en styrkurinn var í gegnum þá," segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum utanríkisráðherra, en í skýrslu ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka kemur fram að utanríkisráðuneytið hafi styrkt Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur. Þá gegndi Valgerður stöðu utanríkisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×