Innlent

Sjálfstæðismenn sviku hina flokkana

Steingrímur J. Sigfússon Fjármálaráðherra furðar sig á styrkjum til Sjálfstæðisflokksins. Fréttablaðið/GVA
Steingrímur J. Sigfússon Fjármálaráðherra furðar sig á styrkjum til Sjálfstæðisflokksins. Fréttablaðið/GVA

„Ef þetta er rétt er þetta með ólíkindum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um þrjátíu milljóna styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í desember 2006.

Styrkurinn var greiddur fjórum dögum áður en lög tóku gildi á Alþingi sem takmörkuðu fjárstuðning við stjórnmálaflokka við 300 þúsund krónur.

Stjórnmálaflokkarnir unnu saman að þeim lögum, og leiddu þau til þess að fjárframlög hins opinbera til flokkanna voru hækkuð.

„Ég hafði satt best að segja ekki hugmyndaflug til að láta mér detta í hug að þá færu einhverjir flokkar þannig að, að þeir sæktu sér milljónatugi til fyrirtækja á laun rétt fyrir áramót og þægju svo eftir áramótin hækkaðan ríkisstyrk,“ segir Steingrímur.

„Mér finnst þetta alveg ofboðslegt, ég verð bara að segja það eins og er,“ segir hann.

„Mér finnst þetta nánast svik við það samstarf sem við áttum um að taka nú loksins til í þessu kerfi, koma þessum hlutum upp á yfirborðið og höggva á þessi óheilsusamlegu tengsl sem allir vissu að áður voru milli sérstaklega tiltekinna stjórnmálaflokka og atvinnulífsins. Mér finnst þetta eiginlega óverjandi í alla staði.“

Steingrímur segir að eðlilegast væri ef Sjálfstæðisflokkurinn endurgreiddi styrkinn og upplýsti um aðra sambærilega. Það ættu aðrir flokkar einnig að gera.

- bþs, sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×