Innlent

Eins og köld vatnsgusa í andlitið

Tollvörður á fimmtugdaldri var í dag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að smygli á tuttugu kílóum af amfetamíni til landsins. Samstarfsmenn mannsins eru í áfalli. Hann hefur aldrei áður komið við sögu lögreglu.

Tollgæslan fann rúmlega 20 kíló af amfetamíni í tollpóstinum á Stórhöfða í Reykjavík með aðstoð fíkniefnahunds þann 21. janúar. Það var síðan í gær sem tollvörður var handtekinn vegna málsins. Efnin voru send frá Danmörku, og hefur lögreglan hér rannsakað málið undanfarnar vikur í samstarfi við lögregluyfirvöld ytra sem og embætti tollstjórans í Reykjavík.

Samstarfsmenn tollvarðarins eru beinlínis í áfalli vegna málsins og segja handtöku hans hafa verið eins og að fá kalda vatnsgusu í andlitið, eins og einn orðaði það. Eftir því sem fréttastofa kemst næst er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur tollvörður er handtekinn vegna gruns um aðild að fíkniefnasmygli.

Tollvörðurinn var leiddur fyrir dómara í morgun og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Alls hafa níu verið handteknir og yfirheyrðir vegna rannsóknarinnar. Átta þeirra hafa sætt varðhaldi, og að tollverðinum meðtöldum sitja nú sex í gæsluvarðhaldi vegna þessa máls.

Rétt þykir að taka fram að grunsemdir lögreglu beinast aðeins að þeim tollverði sem nú sætir gæsluvarðhaldi en ekki að öðrum í starfsumhverfi hans svo sem hjá tolli eða póstinum.

Ef tollvörðurinn verður fundinn sekur um brot í opinberu starfi og að hafa misnotað sér aðstöðu sína má hann eiga von á refsiþyngingu um allt að helming dóms vegna þess að hann er embættismaður hjá íslenska ríkinu.


Tengdar fréttir

Tollvörður í gæsluvarðhald

Sex einstaklingar sæta gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnamáls, en tollgæslan fann rúmlega tuttugu kíló af fíkniefnum í tollpóstinum á Stórhöfða í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×