Blóðugt stríð í borg englanna á fimmta áratugnum 24. janúar 2013 07:00 Gangster Squad Josh Brolin og Sean Penn í hlutverkum sínum sem lögreglumaðurinn John O‘Mara og glæpaforinginn Mickey Cohen.
Glæpamyndin Gangster Squad verður frumsýnd í kvikmyndahúsum annað kvöld. Leikstjóri myndarinnar er hinn 38 ára gamli Ruben Fleischer. Sá hefur áður leikstýrt tveimur myndum í fullri lengd, Zombieland frá árinu 2009 og 30 Minutes or Less frá 2011. Fleischer hefur einnig getið sér gott orð sem leikstjóri tónlistarmyndbanda og hefur slík með meðal annarra söngkonunni M.I.A., Gold Chains og Electric Six á ferilskránni. Leikhópurinn í Gangster Squad er að sönnu glæsilegur og inniheldur Josh Brolin, Ryan Gosling, Nick Nolte, Emma Stone, Sean Penn, Michael Peña og Giovanni Ribisi. Sögusvið Gangster Squad er fimmti áratugur síðustu aldar og er handritið lauslega byggt á sögu nokkurra lögreglumanna og einkaspæjara í Los Angeles. Þeir taka höndum saman og stofna hóp sem þeir nefna „Gangster squad unit“ til að freista þess að verja borgina fyrir ágangi glæpamannsins Mickey Cohen, sem leikinn er af Sean Penn. Lögreglustjórinn Bill Parker (Nick Nolte) velur lögreglumanninn John O‘Mara (Josh Brolin) persónulega til að hefja stríð á hendur Cohen, en sá síðastnefndi er meðal voldugustu glæpamanna landsins og hefur sterk tengsl við mafíuna. O‘Mara velur harðsnúið lið til að heyja stríðið með sér og er tilgangurinn sá að hrekja Cohen og lið hans út úr Los Angeles til frambúðar. Aðeins einn af þeim sem O‘Mara setur á óskalistann fyrir liðið sitt þekkist ekki boðið, lögreglumaðurinn Jerry Wooters sem leikinn er af hjartaknúsaranum Ryan Gosling, en sá er náinn vinur O‘Mara og farið að leiðast þófið eftir margra ára dvöl í bandaríska hernum og krefjandi starf sem lögreglumaður í framhaldinu. Í kjölfar stofnunar hópsins fer fram óumflýjanlegt uppgjör og skothvellir og blóð eru aldrei langt undan. Gangster Squad hefur hlotið misjafna dóma frá gagnrýnendum. Á vefsíðunni Rottentomatoes.com hlýtur hún 33 prósent í einkunn frá gagnrýnendum og 66 prósent frá hinum almenna áhorfanda. Á vefsíðunni Imdb.com fær Gangster Squad 7,2 í einkunn. Í Chicago Sun-Times gefur gagnrýnandinn Roger Ebert myndinni tvær af fimm stjörnum og segir leikstjórann Fleischer ekki ráða við verkefnið. Ebert segir þó hasaratriðin vel útfærð og hrósar Sean Penn í hlutverki illmennisins Cohen.
Menning Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ísland með auga fuglsins Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira