Í fararbroddi í flutningi nýrra íslenskra leikrita Friðrika Benónýsdóttir skrifar 6. september 2013 12:00 Viðar Eggertsson er stoltur af því að Útvarpsleikhúsið skuli flytja flest ný íslensk leikverk af íslesnskum leikhúsum. Fréttablaðið/Vilhelm
Útvarpsleikhúsið frumflytur í vetur tíu ný íslensk leikverk, bæði eftir vel þekkta og minna þekkta höfunda. Viðar Eggertsson, stjórnandi Útvarpsleikhússins, segir það sérlega ánægjulegt að frumflytja fleiri íslensk verk en nokkurt annað leikhús landsins. „Fyrsta verkið sem frumflutt verður fer í loftið sunnudaginn 29. september,“ segir Viðar Eggertsson, stjórnandi Útvarpsleikhússins, spurður hvenær hin metnaðarfulla vetrardagskrá hefjist. „Síðan dreifast þessi nýju verk tiltölulega jafnt yfir veturinn og fram í maí á næsta ári.“Er ekki Útvarpsleikhúsið undir þinni stjórn í fararbroddi hvað varðar það að fá íslenska höfunda til að skrifa leikrit?„Það má segja að við höfum gert það að aðalmarkmiði Útvarpsleikhússins núna á síðari árum að frumflytja ný íslensk verk,“ segir Viðar. „Við höfum leitað til höfunda um að skrifa fyrir þennan miðil, auk þess sem við höfum verið í mjög gjöfulu samstarfi við tvær síðustu Listahátíðir í Reykjavík. Þar hafa verk verið flutt í sviðsettum leiklestrum og síðan hafa höfundar og leikstjórar fengið svigrúm til að vinna þau áfram og við frumflutt þau veturinn á eftir. Þessi aðferð hefur gefið mjög góða raun og verið lærdómsrík fyrir höfundana og leikstjórana og skilað okkur tíu athyglisverðum leikritum, bæði frá nokkrum af okkar ástsælustu skáldum og björtustu vonum framtíðarinnar, ef svo má segja. Og það er rétt að ekkert íslenskt leikhús frumflytur jafn mörg íslensk verk og Útvarpsleikhúsið, sem er sérlega ánægjulegt.“Hátt hlutfall kvenna í flokki höfunda og leikstjóra vekur athygli, var það meðvitað átak?„Já, það hefur hallað á konur í þessum geira, en það var lítið mál þegar við settumst niður til að ákveða til hvaða höfunda við vildum leita að finna konur til að skrifa leikrit. Þær sem ég leitaði til brugðust allar fljótt og vel við þannig að þetta er bara spurning um að hafa áhrif á fólk og vekja áhuga þess á þessum miðli.“Nýtt fjárhagsár Ríkisútvarpsins hefst í september, óttastu að það verði þyngri róður næsta ár í ljósi umræðu um niðurskurð til RÚV?„Við skulum vona að það verði skilningur á mikilvægi Útvarpsleikhússins því þótt útvarpsleikrit séu dýrasta efnið sem framleitt er fyrir útvarp er það ódýrasta leikhús sem til er og við náum til mun fleiri gesta en önnur leikhús. Við höfum því ákveðnu menningarhlutverki að gegna sem felst í því að vinna með miðilinn, skoða samtíma okkar og líf og fá til þess margt af okkar áhugaverðasta leikhúsfólki.“ Útvarpsleikhúsið sendir út á hverjum sunnudegi klukkan 13 og eins og Viðar orðar það: „Það eru allir velkomnir og hjá okkur sitja allir í bestu sætum.“
Menning Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið Myndasyrpa úr Bakgarðshlaupinu Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Krakkatían: Dýrin, heimsálfur og teiknimyndir Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira