Menning

Dr. Gunni aðstoðar Grýlu og Leppalúða

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Grýla og Leppalúði hita upp fyrir jólasveinana í Þjóðminjasafninu á sunnudaginn með aðstoð Dr. Gunna.
Grýla og Leppalúði hita upp fyrir jólasveinana í Þjóðminjasafninu á sunnudaginn með aðstoð Dr. Gunna. Mynd: Þjóðminjasafnið
Grýla og Leppalúði mæta í Þjóðminjasafnið á sunnudaginn klukkan 14 eins og hefð er orðin fyrir í aðdraganda jóla. Í þetta sinn fá þau aðstoð góðra gesta því Dr. Gunni og vinir hans munu taka þátt í skemmtidagskránni með þeim.



„Þetta er árviss upphitun fyrir heimsóknir jólasveinanna sem byrja að vanda þann 12. desember,“ segir Ólöf Breiðfjörð, kynningarstjóri safnsins. „Þau Grýla og Leppalúði, sem eru á vegum Möguleikhússins, hafa haft þann háttinn á að fá til liðs við sig vinsæla skemmtikrafta fyrir börn og nú var röðin komin að Dr. Gunna. Þessi dagskrá er alltaf haldin helgina áður en jólasveinarnir byrja að heimsækja okkur og þetta er tíunda árið í röð sem þeir heiðra Þjóðminjasafnið með nærveru sinni á aðventunni.“



Ólöf segir heimsóknir þeirra Grýlu, Leppalúða og jólasveinanna hafa notið mikilla vinsælda þessi tíu ár og margar fjölskyldur hafi það sem fastan lið í jólaundirbúningnum að kíkja á þau í Þjóðminjasafninu að minnsta kosti einu sinni á aðventunni, margir oftar. „Það er orðin mjög rík hefð hjá mörgum að koma til okkar með börnin sín og það er að sjálfsögðu ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×