Menning

Einstakt tækifæri fyrir ungt tónskáld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Halldór Smárason og Sir Peter Maxwell Davies.
Halldór Smárason og Sir Peter Maxwell Davies.
Tónskáldið Halldór Smárason var valin úr hópi efnilegra íslenskra tónskálda til að semja nýtt verk fyrir tónlistarhópinn Psappha í Englandi af Curated Place í tengslum við verkefnið Collaborative Compositions 2014.

Curated Place veitir ungum upprennandi tónskáldum tækifæri til að vinna og semja tónverk á alþjóðavettvangi. Psappha er leiðandi Kammertónlistarhópur í Englandi – skipaður tónlistarfólki frá BBC Philharmonics.

Halldór kvaddi Manchester í gær eftir viku dvöl þar sem hann hitti tónlistarhópinn í fyrsta sinn. Hann var viðstaddur æfingar og fékk tækifæri til að undirbúa tónsmíðarnar með hópnum.

Hápunktur heimsóknarinnar var síðastliðinn Laugardag þar sem Halldór var viðstaddur æfingar vegna afmælistónleika breska tónskáldsins Sir Peter Maxwell Davies, sem varð áttræður á þessu ári.

Maxwell Davies, fyrverandi Master of the Queens Music, er eitt af virtari tónskáldum samtímans bæði í heimalandinu og á alþjóðavetvangi. Halldór fékk einstakt tækifæri til að fylgjast með honum vinna og leiðbeina Psappha á æfingunni.

Nýtt tónverk eftir Halldór verður frumflutt af Psappha Ensemble á tónleikum í International Anthony Burgess Foundation þann 7. janúar 2015 í Manchester.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×