Menning

Alls konar djöfulgangur og læti

Ugla Egilsdóttir skrifar
Vilborg Ólafsdóttir, Eva Rún Snorradóttir og Eva Björk Kaaber eru í Kviss Búmm Bang.
Vilborg Ólafsdóttir, Eva Rún Snorradóttir og Eva Björk Kaaber eru í Kviss Búmm Bang. Vísir/Stefán
„Allir miðarnir seldust upp á einni viku,“ segir Eva Björk Kaaber, ein listakonan í leikhópnum Kviss Búmm Bang, sem setur upp sýninguna Djöfulgang í mars.

„Reyndar eru þetta ekki nema 28 miðar í heildina, en það er samt nokkuð gott að selja alla miðana. Ekki síst þegar maður lítur til þess að hver miði kostar átta þúsund krónur, og leiksýningin tekur sex klukkutíma. Svo gengst fólk við því að taka þátt í alls konar djöfulgangi og látum með kaupum á þessum miðum,“ segir Eva Björk.

Sýningar á Djöfulgangi eru fjórar, og á hverja sýningu komast sjö gestir. Djöfulgangur er þátttökuleiksýning sem hefst á BSÍ, en þaðan er haldið í óvissuferð með viðkomu á Reykjanesskaga. Gestir fá snjógalla, vasaljós og handrit til að fylgja.

„Þátttakendur verða til í að fara út í auðnina og mæta sjálfum sér. Við vissum alveg að í samfélaginu væri fólk sem væri tilbúið til þess,“ segir Eva. Það kom henni ekki á óvart að miðarnir seldust upp. „Það er alls konar fólk sem hefur á áhuga á því að sjá alls konar leikhús,“ segir Eva Björk.

Kviss Búmm Bang hefur fengið Grímutilnefningu, og hlaut frumleikaviðurkenningu frá Stígamótum fyrir framlag til samfélagsbreytinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×