Bílar

Dacia afhendir 4 milljónasta bílinn

Dacia Duster.
Dacia Duster.
Sá áfangi náðist hjá rúmenska bílaframleiðandanum Dacia að afhenda bíl númer 4.000.000 í vikunni frá yfirtöku Renault á fyrirtækinu árið 1999. Sá bíll var af gerðinni Dacia Duster og hefur sá bíll einmitt selst ágætlega hér á landi.

Bíllinn var afhentur í Frakklandi, en þar seljast bílar Dacia einnig vel. Það á einnig við í Bretlandi og er þar talsverð eftirspurn eftir bílgerðunum Sandero, Logan MCV og Duster. Í Bretlandi hafa alls selst 78.000 Dacia bílar síðan sala þeirra hófst í apríl árið 2013. Það þýðir að af meðaltali seljast yfir tvö þúsund Dacia bílar í hverjum mánuði í landinu og slær Dacia þar við mörgum þekktari og eldri bílamerkjum sem þar eru seld.

Sala Dacia á Íslandi hefur vaxið mjög að undanförnu og seldust til að mynda 178 Dacia bílar í síðasta mánuði samkvæmt tölum frá Samgöngustofu. Alls hafa verið seldir 454 Dacia bílar hér á landi í ár og um að ræða mikla aukningu frá árinu í fyrra. Markaðshlutdeild Dacia í nýjum seldum bílum á Íslandi í ár er yfir 3% og má rúmenski bílaframleiðandinn mjög vel við una.

Dacia hefur verið í eigu Renault frá árinu 1999. Dacia var stofnað árið 1966 og er því 50 ára í ár. Alls hefur Dacia framleitt yfir 6 milljónir bíla frá stofnun fyrirtækisins.






×