Bílar

Vann ferð á úrslitaleik EM

Finnur Thorlacius skrifar
Lilja Dögg Vilbergsdóttir tekur hér við vinningnum hjá Brimborg Akureyri.
Lilja Dögg Vilbergsdóttir tekur hér við vinningnum hjá Brimborg Akureyri.
Lilja Dögg Vil­bergs­dótt­ir var dreg­in út í EM-leik notaðra bíla hjá Brim­borg og er nú á leiðinni á úr­slita­leik­inn á EM í knatt­spyrnu 2016. 

All­ir sem keyptu notaðan bíl af Brim­borg á tíma­bil­inu 8. til 30. júní fóru í pott. Einn hepp­inn vinn­ings­hafi var svo dreg­inn út.

Í vinn­ing var ferð fyr­ir tvo á úr­slita­leik EM sem fram fer sunnu­dag­inn 10. júlí. Innifalið er flug með Icelanda­ir, gist­ing á glæsi­legu hót­eli og miðar á úr­slita­leik­inn.






×