Bílar

Porsche 911 Turbo S bakar Jaguar F Type AWD

Finnur Thorlacius skrifar
Bílablaðið EVO efnir reglulega til einvígis milli bíla sem eru með krafta í kögglum og birtir á Youtube vefnum. Það nýjast frá þeim er athyglivert einvígi milli Porsche 911 Turbo S bíls og Jaguar F Type R AWD. Margir bílaframleiðendur halda að þeir eigi einhvern séns í bíla Porsche en flestir fara með skottið á milli lappanna eftir þær rimmur. Það á einnig við hér.

Porsche 911 Turbo S bíllinn er svo fljótur að það þarf margfalt dýrari ofurbíla til að skáka honum. Hann er 572 hestöfl en Jaguar bíllinn 542 hestöfl, svo ekki munar miklu á aflinu, en það sem ríður baggamuninn er gripfesta Porsche bílsins og árangur Porsche manna að skila öllu aflinu í malbikið, auk frábærrar PDK-sjálfskiptingar bílsins.

Hann er litlar 2,6 sekúndur í 100 km hraða, fer kvartmíluna á 10,5 sekúndum og hálfa mílu á 16,7 sekúndum. Jaguar bíllinn er 3,5 sekúndur í hundraðið þrátt fyrir svo til sama afl, er fjórhjóladrifinn eins og Porsche 911 Turbo S bíllinn en hann er þó sýnu þyngri. Sem fyrr er sjón sögu ríkari. Það þarf meira en þetta til að slá við Porsche 911 Turbo S.






×