Bílar

Ofurhetjur á Porsche Roadshow 2016 komnar til landsins

Finnur Thorlacius skrifar
Ofurbílarnir 5 sem komnir eru til landsins í tilefni af Roadshow 2016 hjá Bílabúð Benna.
Ofurbílarnir 5 sem komnir eru til landsins í tilefni af Roadshow 2016 hjá Bílabúð Benna.
Bílabúð Benna hefur fengið til landsins sportbílana Porsche Boxster GTS, 991 C4 S, Cayenne GTS, Cayenne Turbo S og Macan GTS. Tilefnið er Porsche Roadshow 2016, sem fyrirtækið stendur fyrir dagana 14. - 19. ágúst, en þar gefst þátttakendum tækifæri til að aka ofursportbílum á kappaksturbraut Kvartmíluklúbbsins undir leiðsögn sérþjálfaðs Porsche kennara. 

Enn eru nokkur laus pláss en lesa má nánar um viðburðinn á fésbókarsíðu Bílabúðar Benna. Einnig verða þessir bílar til sýnis á stórsýningu Porsche núna á laugardaginn og gefst þar áhugafólki tækifæri til að skoða þessa mögnuðu bíla ásamt ofurhetjunum 718 Boxster og Cayman GT4 sem verða frumsýndar.

Stórsýning Porsche fer fram í Porsche salnum, laugardaginn frá kl. 12 til 16.






×