Bílar

Öflugasta mótorhjól landsins

Finnur Thorlacius skrifar
Kawasaki H2 hjólið verður til sýnis í dag í Nitro.
Kawasaki H2 hjólið verður til sýnis í dag í Nitro.
Fyrsta eintakið af hinu forþjöppuvædda 210 hestafla Kawasaki H2 er komið í salinn hjá mótorhjólaversluninni Nítró og verður til sýnis þar í dag, fimmtudaginn 11. ágúst og aðeins þann dag áður en það fer til nýs eiganda síns. Kemur þetta fram á billinn.is

Kawasaki H2 mótorhjólið hefur vakið mikla athygli, ekki aðeins fyrir aflið og forþjöppuna heldur einnig loftflæðiútlitið og margþátta silfurlitinn sem á því er og sést í fyrsta skipti á framleiðslumótorhjóli. Meðal annars er glersalli í glærunni til að ná fram sindrandi útliti sem aðeins er hægt að njóta með eigin augum.

Þeir sem vilja koma í Nítró og berja dýrðina augum geta gert það en munið, ekki snerta! Mótorhjólaverslunin Nitro er í Urðarhvarfi 4, Kópavogi. 






×