Bílar

Stórsýning hjá Toyota á morgun

Finnur Thorlacius skrifar
Toyota Proace.
Toyota Proace.
Á morgun,  laugardag, 12. nóvember verður blásið til stórsýningar hjá Toyota Kauptúni. Húsið verður opnað stundvíslega kl. 12:00 og þá geta gestir séð alla Toyota línuna á einum stað. Sýndir verða fjölskyldubílar af öllum stærðum, hybridbílar, jeppar og pallbílar. Og ekki má gleyma sendibílunum.

Nýr Proace sendibíll verður sýndur í fyrsta sinn í nokkrum útfærslum. Bæði sem hefðbundinn sendibíll í mismunandi stærðum og einnig sem fjölskyldubíll og til farþegaflutninga.

Opið verður til kl. 16:00 á laugardag og þeir sem reynsluaka eiga möguleika á að vinna 300.000 ferðapunkta, eignast hlýja úlpu frá ZO-ON eða fá nauðsynlegan vetrarpakka fyrir bílinn.






×