Bílar

Það besta frá driftinu í sumar

Finnur Thorlacius skrifar
Mikil gróska er hér á landi í hinum ýmsu akstursíþróttum, meðal annars í drifti og voru margar slíkar keppnir haldnar bæði sunnan og norðan heiða í ár. Þessar keppnir voru vel sóttar af áhorfendum enda keppnirnar mikið fyrir augað og ekki síður eyrun.

Þar sáust oft gríðargóð tilþrif og hefur Jakob Cecil Hafsteinsson tekið saman nokkur athygliverð myndbrot frá fjölmörgum góðum sprettum keppenda í sumar. Má sjá þau hér að ofan. Þess má geta að Aron Jarl Hillers var valinn akstursíþróttamaður árins í ár og er það til marks um gróskuna í driftinu hér á landi.






×