PCC gæti þurft fimm milljarða innspýtingu Hörður Ægisson skrifar 11. september 2019 06:15 Miklar tafir og erfiðar aðstæður á hávörumörkuðum hafa einkennst starfsemi kísilversins á Bakka.
Hluthafar kísilversins á Bakka við Húsavík, þýska fyrirtækið PCC SE og íslenskir lífeyrissjóðir, skoða nú leiðir til að leggja fyrirtækinu til aukið fjármagn á næstu vikum svo tryggja megi rekstrargrundvöll þess. Samkvæmt heimildum Markaðarins gera áætlanir ráð fyrir því að kísilverið þurfi mögulega að fá innspýtingu að fjárhæð um 40 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um fimm milljarða íslenskra króna. Sú fjármögnun, sem áformað er að kæmi að stærstum hluta frá þýska fyrirtækinu, yrði þá að líkindum annaðhvort í formi nýs hlutafjár eða hluthafaláns. Miklar tafir og erfiðar aðstæður á hávörumörkuðum, þar sem kísilverð hefur farið lækkandi, hafa einkennt starfsemi kísilversins en það var formlega gangsett í maí í fyrra. Þá hafa vandræði í hreinsivirki verksmiðjunnar valdið því að slökkva hefur þurft á ljósbogaofnum en vonir standa til að hægt verði að byrja að starfrækja þá á fullum afköstum áður en árið er liðið. Íslenskir lífeyrissjóðir, meðal annars Gildi, Stapi og Birta, ásamt Íslandsbanka, fara með 13,5 prósenta hlut í kísilveri PCC á Bakka í gegnum samlagshlutafélagið Bakkastakk auk þess að hafa fjárfest í breytanlegu skuldabréfi útgefnu af því félagi að fjárhæð 62 milljónir dala. Samtals nemur fjárfesting lífeyrissjóðanna og bankans í kísilverinu, bæði í forgangshlutafé og breytanlegu skuldabréfi, samtals jafnvirði um tíu milljarða króna. Á síðustu vikum hafa stjórnir lífeyrissjóðanna fengið kynningu á stöðu mála og hvaða leiðir séu færar til að bæta fjárhagsstöðu kísilversins en það er Summa rekstrarfélag sem hefur umsjón með þeirri vinnu. Þá hefur einnig verið leitað til Íslandsbanka til að kanna fleiri valkosti í tengslum við fjármögnun og eins breytingar á fjármagnsskipan félagsins. Til stendur að gera hluthöfum Bakkastakka nánar grein fyrir stöðunni á fundi þriðjudaginn 17. september næstkomandi. Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur verið rætt við lífeyrissjóðina hvort þeir hafi áhuga á að koma með aukið fjármagn inn í reksturinn ásamt PCC SE en það hefur nú þegar lagt kísilverinu til aukið fé í formi hluthafaláns að fjárhæð 34 milljónir dala sem var veitt í fyrra. Samþykki lífeyrissjóðirnir að hafa aðkomu að því að leggja kísilverinu til aukið fjármagn þá yrði hlutur þeirra hins vegar mun minni en þýska fyrirtækisins en eignarhlutur þess í PCC BakkaSilicon er 86,5 prósent. Á meðal þeirra breytinga sem eru einnig til skoðunar varðandi fjármagnsskipan félagsins, í því skyni að bæta sjóðsstreymið til skamms tíma, er að fresta tímabundið vaxtagreiðslum af breytanlega skuldabréfinu til lífeyrissjóða. Skuldabréfið, sem var bókfært á nærri 9,5 milljarða króna í árslok 2018 í reikningum Bakkastakks, er með breytirétti og ber 8,5 prósenta vexti. Miðað við það nema árlegar vaxtagreiðslur af bréfinu því um 800 milljónum króna. Framkvæmdir við verksmiðjuna hófust fyrst í júní árið 2015 og á árleg framleiðsla að nema um 32 þúsund tonnum. Alverktaki byggingarframkvæmda PCC á Bakka er SMS group GmbH en það er með höfuðstöðvar í Düsseldorf í Þýskalandi. Eignir PCC BakkaSilicon námu um 360 milljónum dala í lok síðasta árs og var eigið fé félagsins um 40 milljónir dala.
Birtist í Fréttablaðinu Norðurþing Mest lesið Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Viðskipti innlent Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Viðskipti innlent Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Viðskipti innlent „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Atvinnulíf Gengi Icelandair flaug upp á við Viðskipti innlent Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki Atvinnulíf Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Viðskipti innlent Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota Viðskipti innlent Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnulíf Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Ráðin markaðsstjóri Sensa Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota Verðtryggð jafngreiðslulán aðeins í boði fyrir fyrstu kaupendur 4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði Fegurð er glæpur kom út í mínus Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Hjalti Már tekur við af Hreiðari Þór hjá Datera Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Heildareignir einstaklinga jukust um rúm fimm prósent á síðasta ári Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Sótti 410 milljónir og margfaldaði starfsmannafjöldann Aðgerðir stjórnvalda eigi líka að taka mið af æviskeiði Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Bjørn Richard til liðs við Athygli Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Sjá meira