Innlent

Segja engan fót fyrir ágreiningi um athugun á hópsýkingu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Alma Möller landlæknir og Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans á leið til fundar.
Alma Möller landlæknir og Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans á leið til fundar. Vísir/Vilhelm

„Af fréttum síðasta sólarhrings má draga þá ályktun að ósætti sé milli Landspítala og Embættis landlæknis. Nánar tiltekið að ágreiningur sé um þann farveg sem athugun á hópsmiti á Landakoti er í. Það er fjarri sanni og enginn fótur fyrir slíku.“

Þetta segir í tilkynningu á vef Landspítalans sem undirrituð er af Embætti landlæknis og Landspítala. Þvert á móti hafi Landspítali og Embætti landlæknis átt náið samstarf í heimsfaraldrinum sem hefur í einu og öllu einkennst af gagnkvæmri virðingu og sameiginlegum skilningi á því umfangsmikla verkefni sem blasir við vegna COVID-19.

Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, sagði í viðtali við mbl.is að það ætti eftir að koma í ljós hvort sýkingin yrði tilkynnt sem alvarlegt atvik en ekki væri tímabært að hugsa um slíkt sem stæði.

Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala segir í samtali við Morgunblaðið að hann sé ósáttur að heyra að svo gæti orðið. Tilkynning um alvarlegt atvik myndi ganga þvert gegn því sem sagt hafi verið hingað til um samstöðu í baráttunni við faraldurinn.

Í tilkynningunni frá Embætti Landlæknis og Landspítala er minnt á að spítalinn sé á neyðarstigi.

„Vangaveltur um hugsanlega framvindu á athugun á því hópsmiti sem varð á Landakoti eru ótímabærar og mega ekki tefja það vandasama verkefni að vinna úr þeirri alvarlegu stöðu sem komin er upp,“ segir í tilkynningunni.

Landspítali skoði hópsýkinguna á Landakoti með smitrakningu og njóti í því verkefni fulltingis smitrakningarteymis almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Af niðurstöðu þeirrar vinnu verði lærdómur dreginn.

„Upplýsingamiðlun um þann lærdóm verður fumlaus þegar þar að kemur.“

Minnt er á að íslenska heilbrigðiskerfið sé undir gríðarlegu álagi við fordæmalausar aðstæður í miðjum heimsfaraldri.

„Mikilvægt er að mannauðnum þar sé skapaður nauðsynlegur vinnufriður og veitt sú virðing sem hann á skilið. Þolinmæði og þrautseigja eru lykilatriði þegar mörk hins mögulega eru þanin til hins ítrasta. Við þetta og margt fleira fást Landspítali og Embætti landlæknis jafnóðum allan sólarhringinn, af þolgæði og í einbeittum og samstíga takti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×