Innlent

Aldrei fleiri innlagnir vegna Covid-19 á einum sólarhring

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir að staðan á Landspítalanum sé erfið. Átta Covid-19 sjúklingar þurftu á innlögn að halda í gær.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir að staðan á Landspítalanum sé erfið. Átta Covid-19 sjúklingar þurftu á innlögn að halda í gær. Landspítali/Þorkell

Aldrei hafa jafn margir þurft að leggjast inn á spítala vegna covid-19 á einum sólarhring og í gær en þá voru átta covid-19 sjúklingar lagðir inn vegna veikinda sinna. Sjötíu og fimm eru nú inniliggjandi, þar af eru fjórir á gjörgæslu og tveir í öndunarvél. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, var spurður hvernig ástandið væri á Landspítalanum.

„Þetta er bara mjög erfið staða. Þetta er ansi stór hluti þeirra leguplássa sem eru á Landspítalanum sem eru undir í þessu Covid-verkefni, það er ansi stórt hlutfall sem er eingöngu vegna Covid og það hefur áhrif á alla starfsemina. Eins og fram hefur komið varðandi skurðaðgerðir þá er mjög lítill hluti þeirra skurðaðgerða sem venjulega eru framkvæmdar í gangi núna. Þetta hefur svo margvísleg áhrif á kerfið í heild sinni.“

Nítján manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa færri greinst smitaðir innanlands síðan 16. september, þegar þeir voru einnig nítján talsins.

„Tölurnar í dag eru jákvæðar en á sama tíma erum við að fylgjast með mjög erfiðri stöðu á Landspítalanum. Það er blendinn hugur í dag,“ sagði Víðir sem bætti við að staðan væri samt viðbúin.

„Þetta er bara eins og við sáum í fyrri bylgjunni og sjáum núna að toppnum í álagi á heilbrigðisþjónustu er ekki náð fyrr en að minnsta kosti tveimur vikum eftir toppinn á staðfestum smitum. Þetta er nálægt því sem við áttum von á en það er óvenjulegt að fá svona marga sjúklinga inn á sama sólarhring, við höfum aldrei lent í því áður. Staðan hefur verið erfið síðan í gærkvöldi.“

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum.Vísir/Baldur

Víðir var spurður hvernig smitin hefðu dreifst síðasta sólarhringinn.

„Þetta er svona skiptist í helming landsbyggð og helming höfuðborgarsvæðið varðandi þessi sýni. Stærstur hluti þeirra sýna sem eru á landsbyggðinni eru fyrir norðan en við erum samt að sjá þetta nokkuð víða, bæði á Suðurlandi og Vesturlandi líka en síðan byrjuðu skimanirnar vegna sóttkvíar á Dalvík í morgun og verða líka á morgun. Við munum sjá betur hvað hefur komið út úr skimunum á Dalvík í fyrramálið. Það fóru ansi margir á Dalvík í sýnatöku í dag“.

Víðir var spurður hvernig hann mæti stöðuna í dag og hvort hann teldi að þær sóttvarnaráðstafanir sem ráðist hefur verið í væru búnar að skila einhverjum árangri.

„Við fengum á tilfinninguna snemma í vikunni að allir ætluðu að einhenda sér í þetta verkefni. Við erum vonandi að sjá fyrstu vísbendingar um að þetta sé að bera árangur. Við munum sjá þetta betur næstu daga.“

En ertu bjartsýnn á að sóttvarnalæknir geti mælt með afléttingu einhverra takmarkana sem eru í gildi strax 18. nóvember?

„Ég held við verðum að bíða og sjá til. Við erum að horfa á heilbrigðiskerfið í heild sinni; álagið og fleira. Það hefur verið stóra málið í þessu fyrir okkur þegar farið var í þessar hertu aðgerðir; að verja heilbrigðiskerfið. Við verðum að bíða og sjá til áður en við getum farið að leggja raunverulegt mat á það,“ sagði Víðir sem bætti við að jafnvel um miðja næstu viku gætum við farið að sjá skýrari mynd af stöðu faraldursins.

Sóttvarnateymið hefur ráðist í umfangsmikla greiningarvinnu á smitrakningargögnum til að hjálpa sóttvarnalækni að leggja mat á það hvaða starfsemi er hættulegri en önnur með tilliti til smithættu.

Víðir var einnig spurður út í grímuskylduna; hvort honum þætti líklegt að hún væri komin til að vera þar til bóluefni berst.

„Ég held við þurfum að rýna í rannsóknir hvað það varðar. Það er alltaf verið að birta betri gögn og að verða til meiri þekking á grímunotkun og ég held að það verði eins með hana og svo margt annað í þessu að við munum byggja ákvörðun okkar á nýjustu gögnum sem liggja fyrir hverju sinni en ég held að grímunotkun sé að einhverju leyti komin til að vera hjá okkur í vetur.“

Víðir vildi að lokum fá að koma á framfæri skilaboðum til almennings nú þegar líður að helgi.

„Ég hvet fólk áfram til að fara mjög varlega og sýna hvert öðru væntumþykju um helgina. Við verðum að passa upp á hvert annað núna. Við höfum sagt að við séum á ögurstundu í bylgjunni núna og það skiptir máli að við förum öll varlega og pössum hvert upp á annað.“


Tengdar fréttir

Landspítalinn „enn í skotgröfunum“

Von er á niðustöðu úr athugun Landspítalans á hópsmitinu á Landakoti í byrjun næstu viku að sögn Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans. Hann segir að rætt hafi verið yfir 100 manns um málið og að útlit sé fyrir að skýringin felist í samspili nokkurra þátta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×