Innlent

Opnað fyrir umferð á tvöfaldri Reykjanesbraut

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag.
Frá Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Vegagerðin

Umferð var hleypt á tvöfalda Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag, þar með lýkur að mestu framkvæmdum sem Vegagerðin bauð út í fyrra og hófust í maí 2019.

Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að útboðið hafi hljóðað upp á tvöföldun Reykjanesbrautar (41) í Hafnarfirði, nánar tiltekið 3,2 kafla milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar.

Í útboðinu var einnig innifalin gerð nýrrar vegbrúar yfir Strandgötu, gerð tveggja göngubrúa yfir Reykjanesbraut við Ásland og Þorlákstún ásamt gerð umfangsmikilla hljóðvarna. Þá voru í verkinu breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir, og loks frágangur á landi og landmótun.

Það var heldur kuldalegt við Reykjanesbraut í dag þegar ljósmyndari Vegagerðarinnar smellti af þessari mynd.Vegagerðin

„Framkvæmdin Reykjanesbraut (41) Kaldárselsvegur – Krýsuvíkurvegur, er merkileg fyrir þær sakir að þessi vegkafli er sá fyrsti sem klárast af þeim sem tilheyra Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins auk þess sem gert er ráð fyrir legu Borgarlínunnar undir Reykjanesbrautina við Strandgötu í framtíðinni,“ segir á vef Vegagerðarinnar.

ÍSTAK var verktaki verksins en Mannvit sá um eftirlit. Verkáætlanir stóðust í stórum dráttum og hefur samkvæmt því sem segir á vef Vegaerðarinnar lítil sem engin töf orðið á afhendingu verksins þrátt fyrir óvenjulega tíma.

Allar fjórar akreinar voru teknar í notkun um miðjan dag í dag, 24. nóvember en verktaki vinnur nú að lokafrágangi á og við Reykjanesbrautina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×