Veður

Norð­lægar áttir og yfir­leitt létt­skýjað sunnan- og vestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hægari vestlæg átt í kvöld og þykknar upp vestanlands, en styttit upp eystra.
Hægari vestlæg átt í kvöld og þykknar upp vestanlands, en styttit upp eystra. Vísir/Vilhelm

Spáð er norðlægum áttum, tíu til átján metrar á sekúndu í dag, en það lægir á vestanverðu landinu með morgninum. Yfirleitt verður léttskýjað sunnan- og vestantil, en dálítil él norðaustanlands. Hiti verður um eða rétt yfir frostmarki.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði hægari vestlæg átt í kvöld og þykkni upp vestanlands, en stytti upp eystra.

„Norðlæg eða breytileg átt á morgun, gola eða kaldi og dálitlar skúrir eða slydduél. Birtir víða til um landið sunnan- og vestanvert eftir hádegi og það bætir heldur í vind austast. Hiti 0 til 6 stig, en kólnar aftur síðdegis.“

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt 5-10 m/s og dálitlar skúrir eða él. Víða þurrt og bjart eftir hádegi, en norðvestan 8-15 og stöku él A-til. Hiti 0 til 6 stig, en kólnar síðdegis.

Á föstudag: Vaxandi suðaustanátt, 10-18 og rigning S- og V-lands síðdegis. Hiti 2 til 7 stig. Hægari vindur og þurrt NA-til á landinu með hita um og undir frostmarki.

Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Suðaustan 10-18, en lægir með morgninum. Væta með köflum og hiti 3 til 9 stig.

Á sunnudag og mánudag: Breytileg átt og rigning af og til. Hiti 2 til 8 stig.

Á þriðjudag: Útlit fyrir austlæga átt með rigningu eða slyddu víða um land.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×