Innlent

Nýgengi mest hér á landi

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir segir stöðuna á Landspítalanum stjórna því hvort aðgerðir verði hertar.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir segir stöðuna á Landspítalanum stjórna því hvort aðgerðir verði hertar. Vísir/Egill

Nýgengi smitaðra hér á landi er nú með því mesta í Evrópu. Þrjú þúsund og sex hundruð manns hafa smitast af veirunni á einni viku. Sóttvarnalæknir segir stöðuna á Landspítalanum stjórna því hvort aðgerðir verði hertar.

Hvert metið á fætur öðru hefur verið slegið í fjölda þeirra sem hafa greinst með Covid-19 síðustu vikuna, lang flestir með omíkron afbrigði veirunnar. Í gær greindust 893 og hafa aldrei verið fleiri. Nýgengi innanlandssmita er 1359 og hefur líka aldrei verið hærra. 

Það er hærra en í Danmörku þar sem nýgengið hefur verið einna hæst í Evrópu en nýgengið þar er nú 1301 á hverja 100 þúsund íbúa.  

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir býst við að tölur smitaðra haldi eitthvað áfram að hækka næstu daga.

„Við erum að sjá að það er aukning í öllum hópum, hjá óbólusettum, bólusettum og þeim sem hafa fengið örvunarskammt. Þetta er á mestri uppleið hjá þeim sem hafa fengið tvær sprautur en nýgengið er langlægst hjá þeim sem hafa fengið örvunarskammtinn þannig að ég vil áfram hvetja alla til að fara í örvunarskammt sem virðist ætla að minnka verulega líkur á alvarlegum veikindum af völdum omikron,“ segir Þórólfur.

3% landsmanna í sóttkví eða einangrun

Tæplega sextíu prósent þeirra sem greindust innanlands í gær voru utan sóttkvíar. Alls eru um fimm þúsund manns nú í einangrun og ríflega sjöþúsund í sóttkví. Um 500 í skimunarsóttkví. Það samsvarar því að um 3% landsmanna séu ýmist í sóttkví eða einangrun. 

Bandaríska sóttvarnastofnunin hefur ákveðið að mæla með því að stytta einangrun fyrir þá sem greinast með kórónuveiruna hafi fólk lítil sem engin einkenni og hægt sé að stytta sóttkvíartíma. Þá er mælt með að þríbólusett fólk sleppi við sóttkví en sé með grímu. 

Þórólfur segir að litið verði til þessa í framhaldinu. 

„Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna er áreiðanleg stofnun og við tökum mark á þeirra niðurstöðum og við munum skoða þetta með opnum huga eins og alltaf þegar við fáum nýjar upplýsingar.“ segir hann.

Hann segir ekkert nýtt minnisblað á leiðinni en það fari algjörlega eftir stöðunni á Landspítala sem hefur nú verið  færður á neyðarstig.


Tengdar fréttir

Skoðar að stytta einangrun einkennalausra

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, biðlar til fólks að biðja ekki um styttri einangrun fyrr en að sjö dagar eru liðnir frá upphafi einangrunar. Þá skoðar Þórólfur það að stytta einangrun einkennalausra og sóttkví.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×