Innlent

„Ég hvet engan til að fara í slík partý“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir .
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir . Vísir/Egill

Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, ræður fólki eindregið frá því að hittast til þess að smitast viljandi af ómíkrónafbrigði kórónuveirunnar.

Þetta var á meðal þess sem fram kom á upplýsingafundi Almannavarna í dag.

Þar var Þórólfur spurður að því, í ljósi þess að ómíkronafbrigðið virðist vera vægara en önnur afbrigði, hvað hann myndi segja við þau sem hugsa með sér að best væri að næla í sér afbrigðið til að vera „búin“, ef svo mætti að orði komast.

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, spurði þessarar spurningar og vísaði í svokölluð „hettusóttarpartý“, þegar foreldar létu börn sín visvitandi smitast af tiltölulega vægum sjúkdómum á borð við hettusótt og hlaupabólu til að öðlast ónæmi.

„Það er mjög óráðlegt. Það stuðlar að aukinni útbreiðslu í samfélaginu og veiran hittir þá fyrir þá sem munu veikjast alvarlega og leggjast inn,“ svaraði Þórólfur.

Þetta væri ekki góð hugmynd þegar allt kapp væri lagt á að draga úr þeim fjölda sem greinist með Covid-19 á hverjum degi.

„Þetta hangir bara saman, útbreiðslan og hlutfallið sem þarf að leggjast inn. Það væri mjög óráðlegt á sama tíma og við erum að reyna að ná kúrfunni niður,“ sagði Þórólfur.

Það væri ekki ráðlegt að halda slík „partý“ til að næla sér í ómíkrónafbrigði Covid-19.

„Ég hvet engan til að fara í slík partý. Það gæti endað illa.“


Tengdar fréttir

Leggur mögulega til hertar aðgerðir fyrir helgi

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir allt stefna í það að hann þurfi að leggja til að að sóttvarnarreglur verði hertar innanlands til að draga úr daglegum fjölda þeirra sem greinist með Covid-19. Hann segist jafn vel reikna með að skila tillögum um hertar aðgerðir fyrir helgi.

Barn á fyrsta ári með Covid-19 á Landspítala

Eitt barn á fyrsta ári liggur nú inni á Landspítala með Covid-19 og um 60 eru í eftirliti á Barnaspítala vegna sjúkdómsins. Daglega koma um tvö til fimm börn þangað til skoðunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×