Innlent

Um­hleypinga­söm vika fram­undan

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Skil frá næstu lægð nálgast landið.
Skil frá næstu lægð nálgast landið. Vísir/Vilhelm

Eftir stormasama helgi mun stytta upp og lægja í kvöld og nótt. Umhleypingasöm vika er þó framundan.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.

Í dag er útlit fyrir vestanátt, 10-18 m/s éljahryður um landið vestanvert, heldur hvassara við suðausturströndina.

Gular viðvaranir eru í gildi vegna veðurs á Suðurlandi, Faxaflóa og höfuðborgarsvæðinu. Viðvörun fyrir Faxaflóa gildir til hádegis en hinar tvær renna út um kvöldmatarleytið.

Reiknað er með að í éljahryðjunum geti hvesst staðbundið á meðan þau ganga yfir. Úrkomulítið verður austan til. Frost á bilinu 0-10 stig, kaldast í innsveitum.

Það lægir í nótt, yfirleitt úrkomulítið á morgun en þykknar upp suðvestantil með vaxanid suðaustanátt og snjókomu og slyddu og hlýnandi veðri annað kvöld.

Útlit er fyrir hæglætisveður á morgun en síðdegis má reikna með vaxandi suðaustanátt með snjókomu og slyddu við suðvesturströndina þegar skil frá næstu lægð nálgast landið.

Mælir veðurfræðingur á vef Veðurstofu Íslands með því að landsmenn fylgist með veðrinu í vikunni, spár geri ráð fyrir umhleypingasömu veðri.

Veðurhorfur á landinu

Suðvestan og vestan 10-18 m/s í dag en heldur hvassara við suðausturströndina. Éljahryðjur um landið vestanvert en þurrt austantil á landinu. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.

Lægir í nótt, yfirleitt úrkomulítið á morgun en þykknar upp suðvestantil með vaxanid suðaustanátt og snjókomu og slyddu og hlýnandi veðri annað kvöld.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:

Suðvestlæg eða breytileg átt, yfirleitt 3-8 m/s, skýjað með köflum og frost 0 til 10 stig. Vaxandi suðaustanátt með slyddu og síðan rigningu sunnan og vestanlands um kvöldið og hlýnar.

Á þriðjudag:

Vestan og suðvestan 13-20 m/s, en hægari á Norður- og Austurlandi. Rigning og hit 0 til 5 stig. Norðvestlæg átt og snjókoma síðdegis. Dregur úr vindi og úrkomu og kólnar seint um kvöldið.

Á miðvikudag:

Útlit fyrir fremur hæga sunnan átt, bjartviðri og talsvert frost en snýst í vaxandi vestanátt með snjókomu og heldur hlýnandi veðri um landið vestanvert um kvöldið.

Á fimmtudag:

Vestlæg átt og stöku él, en bjart með köflum austantil. Frost 0 til 8 stig. Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestantil um kvöldið.

Á föstudag:

Líkur á hvassri suðvestanátt með rigningu og ört hlýnandi veðri en vestanátt og éljum um kvöldið.

Á laugardag:

Líkur á vestan og norðvestan hvassviðri með snjókomu en úrkomuminna sunnan jökla. Lægir og léttir til síðdegis og kólnar aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×