Innlent

Föst í lægð út mánuðinn

Óttar Kolbeinsson Proppé og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Rok og rigning í júlí. 
Rok og rigning í júlí.  vísir/vilhelm

Veðrið hefur ekki beint leikið við landsmenn þetta sumarið og virðist reyndar alls ekki ætla að gera það ef marka má langtímaspár. Þær gera ráð fyrir reglulegum lægðum og úrkomu út júlímánuð.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur benti á þetta í skrifum sínum á bliku.is í vikunni.

„Alveg sama hvaða spár eru skoðaðar, við virðumst ætla að festast hér með lægðardrag yfir eða í grennd við landið út júlí,“ skrifar Einar.

Að minnsta kosti votti ekki fyrir hæðinni milli Íslands og Noregs, sem einkenndi síðasta sumar, þetta árið. 

Næsta lægð á laugardag

Sumir veðurfræðingar eru þó örlítið bjartsýnni. „Þetta er svolítið svona, hálfgert haustveður. Það er svolítill lægðagangur núna,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, inntur eftir því hvort gular viðvaranir dagsins í dag séu ekki óvenjulegar fyrir júlímánuð. 

„Við erum í svolítið svölu lofti hérna og það er önnur lægð á leiðinni á laugardaginn en hún er ekki jafn hvöss og þessi sem er að ganga yfir í dag,“ segir Þorsteinn.

Þriðja lægðin sé svo væntanleg á mánudag en Þorsteini sýnist svo munu draga úr lægðaganginum í næstu viku. Engin hlýindi séu þó á leiðinni og áfram megi reikna með vætu sunnan- og vestanlands.


Tengdar fréttir

Vellirnir á floti og dagskrá Landsmóts frestað

Fresta þarf dagskrá vegna veðurs á Landsmóti hestamanna sem nú stendur yfir á Gaddstaðaflötum á Hellu. Leiðindaveður er á svæðinu, rok og rigning. Pollar eru á keppnisvöllunum og aðstæður til sýningarhalds afleitar.

Felli­hýsi og trampólín fjúka út á götu

Gular veðurviðvaranir eru í gildi víða á landinu í dag vegna hvassviðris. Engin veðurviðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu en þar hefur lögregla þó fengið tilkynningar um nokkuð fok lausamuna. Fólk er hvatt til að ganga vel frá lausamunum utandyra í dag og tryggja vel að trampólín og hjólhýsi séu vel fest eða í skjóli.

Gul viðvörun víða um land

Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðausturland, miðhálendi og Norðurland eystra og vestra í dag. Á miðhálendi og Norðurlandi verður viðvörunin í gildi til klukkan 21 en á Suðausturlandi verður hún í gildi alveg fram á miðnætti. Veðurstofan hvetur vegfarendur til að aka varlega á þessum slóðum. Að auki verður rigning með köflum í flestum landshlutum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×