Veður

Hressi­leg rigning og gular við­varanir

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu þrjú til tíu stig.
Hiti verður á bilinu þrjú til tíu stig. Vísir/Vilhelm

Það er búið að rigna hressilega á Austfjörðum í nótt og er gul viðvörun í gildi þar vegna úrkomu fram eftir morgni. Veðurstofan gerir þó ráð fyrir að vel dragi úr vætunni fyrir hádegi.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það spái norðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu í dag og rigningu víða. Á norðvesturhlutanum verð þrettán til átján metrar á sekúndu og talsverð úrkoma þar seinni partinn.

„Gular viðvaranir vegna úrkomu hafa verið gefnar út fyrir Vestfirði og Norðurland vestra. Þegar líður á daginn kólnar á landinu og mun úrkoman breytast í slyddu eða snjókomu til fjalla norðvestantil og breytast gulu viðvaranirnar í hríð á fjallvegum í kvöld. Þessar viðvaranir eru í gildi fram eftir morgundeginum.

Á morgun lægir vestanlands, en bætir í vind fyrir austan og er útlit fyrir allhvassa vestanátt þar seinni partinn. Áfram rigning fyrir norðan og slydda eða snjókoma til fjalla,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Gular viðvaranir eru í gildi.Veðurstofan

Gular viðvaranir:

Vestfirðir:

  • 4. okt. kl. 15:00 til 5. okt. kl. 08:00. „Talsverð eða mikil rigning. Búast má við vexti í ám og lækjum. Auknar líkur á skriðuföllum og grjóthruni.“
  • 4. okt. kl. 20:00 til 5. okt. kl. 10:00. „Allhvöss norðanátt (13-18 m/s) með rigningu nærri sjávarmáli. Slydda eða snjókoma á fjallvegum þar sem búast má við erfiðum akstursskilyrðum.“

Strandir og Norðurland vestra

  • 4. okt. kl. 16:00 til 5. okt. kl. 18:00. Talsverð eða mikil rigning. Búast má við vexti í ám og lækjum. Auknar líkur á skriðuföllum og grjóthruni.
  • 4. okt. kl. 22:00 til 5. okt. kl. 23:59. Norðvestan 10-18 m/s með rigningu nærri sjávarmáli. Slydda eða snjókoma á fjallvegum þar sem búast má við erfiðum akstursskilyrðum og á það t.d. við um Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði.

Austfirðir

  • 3. okt. kl. 23:00 til 4. okt. kl. 10:00. Talsverð eða mikil rigning. Búast má við vexti í ám og lækjum. Auknar líkur á skriðuföllum og grjóthruni.
Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Norðvestan og vestan 13-20 m/s, hvassast norðantil. Rigning á láglendi fyrir norðan, en slydda eða snjókoma á heiðum og til fjalla, sums staðar talsverð úrkoma. Þurrt sunnanlands og einnig á Austfjörðum. Lægir og rofar til á Vesturlandi um kvöldið. Hiti á láglendi 3 til 10 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á fimmtudag: Norðvestan og vestan 8-15 og rigning eða slydda á norðanverðu landinu, en yfirleitt hægari vindur og þurrt sunnantil. Hiti 2 til 7 stig.

Á föstudag: Norðvestan og norðan 10-18 m/s með rigningu eða slyddu, en skýjað með köflum á sunnanverðu landinu. Hiti 1 til 7 stig, kaldast í innsveitum norðanlands.

Á laugardag: Gengur í stífa suðlæga átt með rigningu, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti um frostmark norðaustantil, upp í 8 stig með suðurströndinni.

Á sunnudag: Snýst í norðanátt með slyddu fyrir norðan, en styttir smám saman upp á sunnanverðu landinu. Hiti 1 til 6 stig.

Á mánudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu og hlýnandi veðri, en að mestu þurrt norðaustantil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×