Veður

Lægðin grynnist smá saman

Atli Ísleifsson skrifar
Reiknað er með að hiti verði á bilinu eitt til tíu stig í dag og verður mildast syðst.
Reiknað er með að hiti verði á bilinu eitt til tíu stig í dag og verður mildast syðst. Vísir/Vilhelm

Lægðin sem hefur stjórnað veðrinu á landinu síðustu daga er enn fyrir norðaustan land, en grynnist nú smám saman.

Á vef Veðurstofunnar segir að í dag snúist í norðan og norðvestan fimm til þrettán metra á sekúndu með með áframhaldandi rigningu eða slyddu norðantil. Á sunnanverðu landinu verður hins vegar þurrt og víða bjart veður.

Reiknað er með að hiti verði á bilinu eitt til tíu stig, mildast syðst.

„Það lægir víðast hvar á morgun og styttir smám saman upp fyrir norðan, en þó má búast við norðvestan strekkingi austantil á landinu fram á kvöld.

Sunnan og suðaustan kaldi eða stinningskaldi á laugardag og rigning eða slydda með köflum víða um land, en á sunnudag er útlit fyrir hvassa norðanátt með talsverðri úrkomu um landið norðanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Norðvestan 8-15 m/s austantil á landinu, annars hægari vindur. Dálítil rigning eða slydda, en bjart með köflum um landið sunnanvert. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst. Úrkomulítið síðdegis og dregur úr vindi fyrir austan.

Á laugardag: Gengur í suðaustan og austan 8-15 með rigningu eða slyddu á köflum. Snýst í hægari sunnanátt á Suður- og Vesturlandi þegar líður á daginn. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag: Gengur í hvassa norðlæga átt með talsverðri slyddu eða snjókomu, en úrkomulítið sunnantil. Hiti 0 til 6 stig.

Á mánudag: Minnkandi norðvestanátt og dregur úr úrkomu. Svalt í veðri. Snýst í suðaustanátt sunnan- og vestanlands síðdegis og hlýnar með rigningu.

Á þriðjudag: Breytileg átt og væta með köflum. Hiti 2 til 8 stig.

Á miðvikudag: Breytileg átt og lítilsháttar rigning eða slydda. Kólnar aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×