Veður

Rigning, slydda og gular viðvaranir

Bjarki Sigurðsson skrifar
Í dag er ekki spáð úrkomu sunnantil á landinu en norðantil verður rigning eða slydda
Í dag er ekki spáð úrkomu sunnantil á landinu en norðantil verður rigning eða slydda Vísir/vilhelm

Í dag er ekki spáð úrkomu sunnantil á landinu en norðantil verður rigning eða slydda. Búast má við snjókomu á heiðum. Vaxandi norðanátt er á landinu, víða 13-20 metrar á sekúndu. Gular viðvaranir taka gildi um norðanvert landið um hádegisbilið í dag.

Vond akstursskilyrði verða vegna snjókomu og takmarkaðs skyggnis á fjallvegum en gular viðvaranir taka gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra um hádegisbilið. Reikna má með snörpum vindstrengjum við fjöll sunnan- og vestanlands í dag.

Á morgun dregur úr vindi og úrkomu. Norðanáttin verður í átta til fimmtán metrum á sekúndu annað kvöld og skúrir eða él. Bjart verður syðra á landinu.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag:

Breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað, en birtir til er líður á daginn norðantil. Bjart sunnanlands. Hiti 1 til 9 stig, hlýjast sunnanlands.

Á þriðjudag og miðvikudag:

Suðvestanátt og skýjað vestanlands, en bjart austantil. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn.

Á fimmtudag:

Stíf sunnanátt með rigningu eða súld vestanlands, en björtu veðri fyrir austan. Heldur hlýnandi í bili.

Á föstudag:

Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða slyddu á Vestfjörðum, dálítil rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi, en allvíða bjartviðri syðra. Kólnandi veður.


Tengdar fréttir

Gular við­varanir norðan­lands um helgina

Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Norðurlandi eystra um helgina vegna hvassrar norðanáttar og ofankomu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×