Veður

Ört dýpkandi lægð nálgast landið

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti á landinu verður á bilinu núll til sjö stig, mildast syðst.
Hiti á landinu verður á bilinu núll til sjö stig, mildast syðst. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, víða kalda eða strekkingi, og dálítilli vætu norðan- og austanlands. Annars má reikna með léttskýjuðu og að það lægi heldur í nótt. Hiti á landinu verður á bilinu núll til sjö stig, mildast syðst.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að langt suðvestur í hafi er sé ört dýpkndi lægð, sem hreyfist norður á bóginn.

„Því er spáð hægt vaxandi austanátt á morgun og verður orðrið hvasst við suðuströndina annað kvöld. Annars skýjað með köflum og úrkomulítið.

Á laugardag er komin stíf austanátt á landinu og dálítil rigning eða slydda austantil, en annars þurrt að kalla. Hiti víða 0 til 5 stig að deginum, en sums staðar vægt frost í innsveitum.“

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag: Austan og norðaustan 8-13 m/s, en 13-18 við suðuströndina undir kvöld. Skýjað með köflum og skúrir eða él á stöku stað, en þurrt vestanlands. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst.

Á laugardag: Austan 8-15 m/s, en 15-20 syðst. Rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðvestanlands. Hiti 0 til 6 stig.

Á sunnudag: Norðaustan 8-15 m/s, hvassast með suðurströndinni. Dálítil rigning eða slydda með köflum, en þurrt að kalla norðvestanlands. Hiti 0 til 5 stig.

Á mánudag og þriðjudag: Útlit fyrir hvassar norðaustlægar áttir með rigningu, einkum austantil og hægt hlýnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×