Innlent

Það er raun­hæft að út­rýma riðu á Ís­landi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, sem segir vel raunhæft að útrýma riðu í sauðfé á Íslandi en það það taki tíma.
Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, sem segir vel raunhæft að útrýma riðu í sauðfé á Íslandi en það það taki tíma. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Yfirdýralæknir segir það vel raunhæfan möguleika að Ísland verði riðulaust land, ekki síst vegna ræktunar á verndandi arfgerðum gegn riðu í sauðfé. Lagt er til í nýrri skýrslu til matvælaráðherra að gefin verði út sameiginleg landsáætlun stjórnvalda, Matvælastofnunar og bænda um riðuveikilaust Ísland.

Í vikunni skilaði sérfræðingahópur sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra skipaði í vor af sér skýrslu til ráðherra sem ber heitið „Aðgerðir gegn riðuveiki - ný nálgun með verndandi arfgerðum“.

Í skýrslunni er að finna greiningu hópsins á núverandi stöðu og tillögur að útfærslu við ræktun fjár með verndandi arfgerðir.

Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir þekkir vel innihald skýrslunnar.

„Aðal ráðgjöfin er að Íslandi ætti að setja sér áætlun, landsáætlun um hvernig standa á að ræktun með verndandi arfgerðum og að þetta verði í rauninni sameiginlegt plagg, sem ráðuneytið stendur að, Bændasamtökin, sauðfjárbændur og Matvælastofnun þannig að við komum okkur saman um í megindráttum hvernig á að standa að þessu og hver á að gera hvað þannig að við stígum öll í takt og göngum í takt í þessum aðgerðum á næstu árum og áratugum,” segir Sigurborg.

Sigurborg segir að nýja arfgerðin muni breyta öllu ef vel tekst til varðandi riðuna.

„Já, ef að við ræktum hana upp þá mun hún breyta miklu með það að markmiði að reyna að útrýma riðuveiki á Íslandi.”

Hópurinn, sem vann skýrsluna leggur m.a. til að gefin verði út sameiginleg landsáætlun stjórnvalda, Matvælastofnunar og bænda um riðuveikilaust Ísland, þ.m.t arfgerðagreiningar. Einnig að stutt verði við sæðingar með hrútum sem bera verndandi arfgerðir og komið á fót samstarfi við.Aðsend

En er raunhæft að útrýma riðuveiki fyrir fullt og allt?

„Það er raunhæft en það tekur tíma. Það þarf þolinmæði og við þurfum samhliða ræktun að stöðva að smitefnin nái að dreifa sér og reyna að gera allt sem við getum þar þannig að það sé ekki að dreifa sér frá viðkomandi bæ eða magnist upp á bænum,” segir Sigurborg.

Skýrsla hópsins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×