Rafíþróttir

Val­kyrjur og Venus ó­sigraðar á toppnum

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Liðin Jötunn Valkyrjur og Venus eru enn ósigruð eftir þrjár umferðir og tróna á toppi Míludeildarinnar í Valorant.
Liðin Jötunn Valkyrjur og Venus eru enn ósigruð eftir þrjár umferðir og tróna á toppi Míludeildarinnar í Valorant.

Þriðja um­ferð Mílu­deiladarinnar í Val­orant fór fram á föstu­dags­kvöld og að henni lokinni eru liðin Jötunn Val­kyrjur og Venus, enn ó­sigruð, í tveimur efstu sætum deildarinnar.

Valkyrjurnar eftir sannfærandi 13-4 sigur á Hetti og Venus eftir að hafa klárað GoldDiggers 13 - 6. Þá hafnaði lið Þórs í 6. Sæti eftir að hafa landað sínum fyrsta sigri á mótinu, gegn Guardian Grýlunum, 13-8.

Venju samkvæmt fylgdust Mist Reyk­dal Magnús­dóttir og Daníel Máni Óskars­son með gangi mála í beinni útsendingu og lýstu meðal annars viðureign Valkyrjanna og Venusar.

Úrslit 3. Umferðar:

Jötunn Valkyrjur - Höttur 13 - 4

ControllerZ - Klutz 3 - 13

Þór - Guardian Grýlurnar 13 - 8

Venus - GoldDiggers 13 - 6

Daníel Máni benti á að nú þegar þrjár umferðir væru búnar og fjórar eftir þyrftu liðin að fara að skoða sinn gang og hversu mikið framhaldið er í þeirra höndum en þau lið sem sjái fram á að staða þeirra á stigatöflunni ráðist frekar af úrslitum hjá öðrum liðum en eigin frammistöðu séu komin á hættulegan stað.

Mist, sem var á sínum tíma fyrirliði Valkyrjanna, vakti síðan athygli á því að liðið væri á toppnum eftir sigra á liðum í neðri sætum deildarinnar og það yrði spennandi að sjá þær mæta efri liðum eins og Venus og Klutz.

Daníel Máni Óskarsson og Mist Reykdal Magnúsdóttir greindu stöðuna og lýstu leikjum þriðju umferð Míludeildarinnar í beinni á föstudagskvöld.

Það má því ætla að róðurinn þyngist hjá Valkyrjunum í þessari viku þegar þær mæta einmitt Venusi 27. september í 4. umferð en eins og Mist minnti á þá eru bæði liðin ósigruð og því ekki von á öðru en þetta verði „geðveikur leikur.“

Daníel tók undir að framundan væri vissulega spennandi umferð á föstudaginn mætast auk Venusar og Valkyrja lið ControllerZ og GoldDiggers, Guardian Grýlurnar og Höttur og Þór og Klutz.

Staðan í Míludeildinni í Valorant að loknum þremur umferðum er þannig að Jötunn Valkyrjur eru á toppnum en Guardian Grýlurnar reka lestina.

Tengdar fréttir

Met­þátt­taka í kvenna­deildinni í Val­orant

„Þetta er stærsta Val­orant-mót sem við höfum haldið hingað til og náttúr­lega eina kvenna- og kyn­segin­mótið,“ segir Daníel Máni Óskars­son, móta­stjóri í Mílu­deildarinnar í Val­orant. Verð­launa­féð nemur einni og hálfri milljón en hann bendir á að hingað til hafi engin raf­í­þrótta­deild, önnur en Coun­ter Stri­ke, verið með yfir milljón í verð­launa­fé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×