Lífið samstarf

Um 12.000 manns hafa séð sýninguna Orð gegn orði í Þjóð­leik­húsinu

Þjóðleikhúsið
Hluti hópsins fagnar 50. sýningu verksins Orð gegn Orði. F.v. eru Þóra Karítas Árnadóttir leikstjóri, Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona, Ragnar Jónasson þýðandi og Gugusar sem er höfundur tónlistar.
Hluti hópsins fagnar 50. sýningu verksins Orð gegn Orði. F.v. eru Þóra Karítas Árnadóttir leikstjóri, Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona, Ragnar Jónasson þýðandi og Gugusar sem er höfundur tónlistar.

Það hefur ekkert lát verið á vinsældum einleiksins Orð gegn orði þar sem Ebba Katrín Finnsdóttir þykir fara á kostum í hlutverki lögfræðingsins Tessu. Nú styttist í 60. sýninguna en alls hafa um tólf þúsund leikhúsgestir upplifað þessa mögnuðu sýningu.

Orð gegn orði hóf göngu sína í Kassanum en í ljósi mikillar eftirspurnar var sýningin færð á Stóra sviðið síðasta vetur og fullt hefur verið á allar sýningar síðan. Bæði Þóra Karítas Árnadóttir leikstjóri og Ebba Katrín Finnsdóttur hafa fengið mikið lof fyrir sína vinnu, sem og allir listrænir stjórnendur sýningarinnar. Orð gegn orði hefur vakið sterk viðbrögð áhorfenda sem hafa ekki sparað stóru orðin.

Sýningin textuð á íslensku og ensku

Þann 9. október næstkomandi, verður sýningin sýnd með íslenskum og enskum texta. Hér býðst einstakt tækifæri til að njóta þessarar mikilvægu og mögnuðu leiksýningar, m.a. fyrir fólk sem ekki talar íslensku eða er að læra hana, eða fólk sem býr við heyrnarskerðingu. Við hvetjum þig til að láta það fólk vita sem þú telur að gæti nýtt sér textunina, því aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða.

Eitthvað verður að breytast

Í verkinu segir frá Tessu, ungum og metnaðarfullum lögmanni, sem hefur tekist að klífa hratt upp metorðastigann. Hún vinnur hvert málið á fætur öðru, með framúrskarandi þekkingu sinni á lagabókstafnum, ver sakborninga af fimi og prófar vitni með úthugsuðum spurningum. Skyndilega verður ófyrirsjáanlegur atburður í einkalífi hennar til þess að allt sem virtist svo borðleggjandi sýnist ekki eins einfalt og skýrt og áður, og hún neyðist til að taka hugmyndir sínar og viðhorf til gagngerrar endurskoðunar.

Í verkinu er tekist á við ágengar spurningar um feðraveldið, réttarkerfið, kynferðisbrotamál, siðgæði, sekt og sönnunarbyrði. Hvaða vægi hafa tilfinningar og réttlætiskennd í flóknum málum, og hvenær er sekt nægilega sönnuð? Ebba Katrín Finnsdóttir leikur þennan magnaða verðlaunaeinleik.

Suzie Miller hlaut Olivier verðlaunin fyrir leikritið árið 2023

Orð gegn orði (Prima Facie) er margverðlaunað, nýtt verk sem sló í gegn á West End og Broadway, eftir að hafa unnið til leikritunarverðlauna ástralska rithöfundasambandsins. Verkið hlaut Olivier verðlaunin árið 2023, auk þess sem sýningin hlaut fjölda tilnefninga til Olivier verðlaunanna og Tony verðlaunanna.

Höfundur: Suzie Miller

Leikstjórn: Þóra Karítas Árnadóttir

Þýðing: Ragnar Jónasson

Leikmynd og búningar: Finnur Arnar Arnarson

Tónlist: Gugusar

Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson

Myndbandshönnun: Ásta Jónína Arnardóttir

Hljóðhönnun: Kristján Sigmundur Einarsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×