Menning

Tilboð á símaþjónustu

Hjá Símanum er nú hægt að nýta sér tilboð sem heitir Allt saman. Þar hefur þú heimasíma, ADSL-sítengingu og farsíma hjá Símanum og færð að launum ýmis frábær tilboð. Þeir sem skrá sig í þessa þjónustu fyrir 31. ágúst fá þrjátíu fríar mínútur á mánuði úr farsímanum þínum í þrjá mánuði. Þetta tilboð gildir úr farsíma í farsíma og heimasíma hjá Símanum. Ef þú nýtir þér Allt saman tilboðið færðu ýmislegt aukalega í verðlaun. Til dæmis sextíu fríar mínútur á mánuði milli heimasíma hjá Símanum, frítt talhólf og fimmtíu prósenta afslátt af símtölum og smáskilaboðum í þrjú önnur númer hjá Símanum. Einnig færðu hundrað megabæta frítt gagnamagn frá útlöndum eða ADSL 2000 sítengingu á verði ADSL 1500 sítengingu. Síðan eru alltaf tilboð reglulega á búnaði og þjónustu hjá Símanum ásamt tilboðum í bíó, leikhús, á tónleika og á veitingahús svo eitthvað sé nefnt. Hægt er að skrá sig í þjónustuna á vefsíðunni siminn.is og í síma 800 7000.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×