Viðskipti erlent

Skaðvaldar á svartan lista

Kínversk stjórnvöld hafa sett þrjátíu mengandi fyrir­tæki á svartan lista.
Kínversk stjórnvöld hafa sett þrjátíu mengandi fyrir­tæki á svartan lista.

Stjórnvöld í Kína hafa nú komið sér upp sínum fyrsta svarta mengunarlista. Hann prýða þrjátíu kínversk fyrirtæki sem á einn eða annan hátt hafa brotið mengunarlög landsins.



Listinn er liður í tilraunum stjórnvalda til að stemma stigu við vaxandi mengun í landinu. Hún hefur aukist í beinu hlutfalli við aukinn hagvöxt. Fyrirtækin þrjátíu munu ekki geta tekið bankalán í Kína fyrr en þau hafa bætt ráð sitt. Meðal þeirra eru matvælafyrirtæki, pappírs- og stálframleiðendur.



Stjórnvöld í Kína hafa sett sér það markmið að draga úr útblæstri skaðlegra lofttegunda um tíu prósent á milli áranna 2005 til 2010. Á sama tíma eru tvö ný raforkuver, sem brenna kolum, olíu eða gasi, reist í viku hverri. Efast því ýmsir um að mögulegt muni reynast að standa við þær áætlanir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×