Viðskipti erlent

Markaðir enn á niðurleið

Áhyggjufullur verðbréfamiðlari í Singapor.
Áhyggjufullur verðbréfamiðlari í Singapor. Mynd/AP

Gengi hlutabréfa á helstu fjármálamörkuðum í Asíu og Evrópu hélt áfram að lækka í dag, þriðja daginn í röð eftir að SCI-vísitalan féll snarlega í Kína á þriðjudag eftir nokkrar hækkanir dagana á undan.

Nokkrar ástæður eru fyrir vísitölulækkuninni síðustu daga. Í fyrsta lagi hagnaðartaka fjárfesta eftir að stjórnvöld í Kína ákváðu að innleiða nýjan skatt. Að auki leiddi talsvert lægri hagvöxtur í Bandaríkjunum á síðasta ársfjórðungi lækkunina. Gert hafði verið ráð fyrir rúmlega þriggja prósenta hagvexti vestanhafs á tímabilinu en hann reyndist einungis 2,2 prósent auk þess sem einkaneysla dróst saman í landinu um heil 19 prósent á sama tíma.

Mesta lækkunin var í Frakklandi en CAC-vísitalan fór niður um 2,1 prósent.

Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir greinendum í Bandaríkjunum og Japan í dag að vel geti verið að um leiðréttingu hafi verið að ræða á hlutabréfamörkuðum, ekki síst þar sem gengi bréfa hafi verið mjög hátt á flestum mörkuðum og að nokkurra mati ofmetið. Þá segi nokkrir að óvíst sé hvenær sjái fyrir enda lækkananna í bráð og gera ekki ráð fyrir að hann nái sínum fyrri hæðum fyrr en um miðjan mánuðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×