Viðskipti erlent

Olíuverðslækkanir hafa áhrif í Noregi

Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Osló í Noregi hefur ekki farið varhluta af lækkunum á helstu fjármálamörkuðum í Asíu og Evrópu í dag. Inn í spilaði reyndar heimsmarkaðsverð á hráolíu, sem hefur talsverð áhrif inn í norsku kauphölina, en það dró vísitöluna niður um 2,8 prósent.

Heimsmarkaðsverð á hráolíu, sem afhent verður í næsta mánuði, lækkaði um 1,12 bandaríkjadali á markaði í Asíu í dag og fór olíuverðið undir 61 dal á tunnu. Verð á Brent Norðursjávarolíu lækkaði um 1,02 dali á sama tíma og fór í 61,06 dali á tunnu í Lundúnum í Bretlandi.

Gengi hlutabréfa fór niður um 4,0 prósent í kauphöllinni í Hong Kong í dag auk þess sem gengi bréfa hefur farið að meðaltali niður um 3,3 prósent í Tókýó í Japan. Svipaða sögu er að segja um vísitölur fleiri landa, þar á meðal hér á landi.

Norska dagblaðið Aftenposten segir óvissu nú ríkja á helstu fjármálamörkuðum.

Í norsku kauphöllinni lækkaði gengi 143 fyrirtækja sem skráð eru í kauphöllina en einungis 13 hækkuðu í verði.

Gengi bréfa í norska olíufélaginu DNO lækkaði talsvert í kauphöllinni, eða um 5,48 prósent í dag, og gengi bréfa í fiskeldisfyrirtækinu Marine Harvest fór nður um tæp 4 prósent.

Gengi bréfa er nokkuð óbreytt í Kauphöll Íslands í dag frá opnun markaðarins en mestu lækkanirnar eru á gengi bréfa í FL Group, Straumi-Burðarási og Landsbankanum.

Úrvalsvísitalan hefur hins vegar nokkuð sigið í morgun en hún hefur farið niður um 2,45 prósent í dag auk þess sem gengi íslensku krónunnar hefur lækkað um 1,7 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×