Viðskipti erlent

Biðin styttist eftir 787 Dreamliner-þotunni

Dreamliner-þota frá Boeing.
Dreamliner-þota frá Boeing. Mynd/AFP

Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing greindi frá því fyrir skömmu að samsetning á fyrstu 787 Dreamliner-farþegaþotu fyrirtækisins færi senn að hefjast. Tilraunaflug vélarinnar hefjast undir lok ágúst.

Að sögn breska ríkisútvarpsins hefur Boeing varið miklum fjármunum í þróun farþegaþotunnar. Nú þegar flugfélög lagt inn pantanir fyrir 464 þotum af þessari gerð.

Boeing er umsvifamesti flugvélaframleiðandi í heimi eftir að fyrirtækið tók fram úr Airbus, sem lenti í talsverðum kröggum vegna tafa á framleiðslu A380 risaþotunnar, á síðasta ári.

James Bell, fjármálastjóri Boeing, segir markaðssetningu nýrrar þotu mjög áhættusaman gjörning en fyrirtækið ætli að reyna eftir megni að komast hjá tæknilegum örðugleikum við framleiðslu flugvélanna. Vandræði við rafmagnskerfi A380 risaþotunnar olli töfum á framleiðslunni hjá Airbus en afhending risaþotanna er tveimur árum á eftir áætlun.

Boeing áætlar að afhenda fyrstu Dreamliner-þoturnar í maí á næsta ári en samtals 112 þotur á næstu tveimur árum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×