Viðskipti erlent

Óbreyttir vextir í Bretlandi

Englandsbanki.
Englandsbanki.

Englandsbanki ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,25 prósentum. Stjórn bankans segir í rökstuðningi sínum fyrir ákvörðuninni að ekki sé loku fyrir það skotið að vextirnir verði hækkaði á næstu mánuðum. Þetta er í samræmi við spár.

Þá er sömuleiðis bent á að verðbólga hafi lækkað um 0,3 prósentustig. Verðbólgan mældist 3,0 prósent í janúar en hún hafði ekki verið hærri í 11 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×