Ísland hafnaði í fjórða sæti í Frakklandi 8. apríl 2007 12:24 Alfreð Gíslason og lærisveinar hans hafa oft spilað betur en þeir gerðu í Frakklandi um helgina.
Íslendingar höfnuðu í fjórða og síðasta sæti á æfingamótinu í Frakklandi eftir að hafa gert jafntefli við Túnisa í lokaleik sínum í dag, 30-30. Túnisar skoruðu jöfnunarmarkið úr hraðaupphlapi þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka eftir. Túnisar höfðu betri markatölu en Íslendingar og hafna því í þriðja sæti. Túnis var yfir í hálfleik, 16-15, og komst í 21-16 í upphafi síðari hálfleiks. Íslendingar náðu hins vegar með mikilli baráttu að jafna metin í 23-23 um miðjan síðari hálfleik og þegar níu mínútur voru til leiksloka voru Íslendingar komnir yfir, 26-25. Lokamínúturnar voru æsispennandi. Túnisar komust aftur yfir, 29-27, þegar fimm mínútur voru eftir en með harðfylgi náðu íslensku leikmennirnir að komast yfir á ný, 30-29, þegar rúm ein mínúta var til leiksloka. Íslenska liðið vann síðan boltann þegar rúm hálf mínúta var eftir, einu marki yfir og einum leikmanni fleiri, en fór afar illa að ráði sínu í blálokin. Túnisar unnu boltann, brunuðu fram og skoruðu jöfnunarmarkið þegar þrjár sekúndur voru eftir. Frakkar sigruðu á mótinu með því að leggja Pólverja af velli í lokaleik sínum, 26-20. Frakkar unnu alla sína leiki og hlutu sex stig, Pólverjar höfnuðu í 2. sæti með fjögur stig, en Túnisar og Íslendingar hlutu eitt stig.
Handbolti Mest lesið Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Íslenski boltinn Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Enski boltinn „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ Enski boltinn „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Enski boltinn Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Enski boltinn Dagskráin í dag: Boltar, pökkar og pílur Sport Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Fótbolti Átta búin að synda sig inn á HM í sundi í Búdapest í desember Sport Tvær breytingar á landsliðshópnum Fótbolti Fleiri fréttir Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Þrjár breytingar á landsliðshópnum | Aron ekki með Mæta Svíum í tveimur leikjum fyrir HM Guðmundur Bragi öruggur á vítalínunni Ómar með fimm fyrir flugið til Íslands Sjá meira