Viðskipti erlent

Lækkun á bandarískum mörkuðum í dag

MYND/Reuters

Nokkur lækkun varð á hlutabréfum á Bandaríkjamarkaði í dag, í fyrsta sinn í þessum mánuði, eftir að Seðlabanki Bandaríkjanna ýjaði að því að hækka þyrfti stýrivexti vegna óvissu um þróun hagvaxtar og verðbólgu.

Eftir að hafa hækkkað átta daga í röð lækkaði Dow Jones um um 0,7 prósent í dag. Sömu sögu var að segja af Nasdaq og S&P 500 vísitölunum en þær lækkuðu einnig um 0,7 prósent vegna þessara tíðinda.

Í punktum frá síðasta fundi stjórnar Seðlabankans sem birtir voru í dag er bent á að hægt hafi á bandarísku efnahagslífi að undanförnu en að það muni jafna sig síðar á árinu. Hins vegar sé verðbólgurþýstingur enn fyrir hendi og það gæti kallað á frekari hækkun stýrivaxta og því ekki lækkun á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×