Viðskipti erlent

Buffett ekki lengur næstríkastur

Carlos Slim, sem breska dagblaðið Guardian segir að sé orðinn næstríkasti maður í heimi.
Carlos Slim, sem breska dagblaðið Guardian segir að sé orðinn næstríkasti maður í heimi. Mynd/AFP

Mexíkóski auðmaðurinn Carlos Slim hefur skellt bandaríska auðkýfingnum Warren Buffett úr sæti sem annar ríkasti maður heims. Buffett, sem nú er þriðji ríkasti maður í heimi, hefur vermt annað sætið á eftir Bill Gates, stofnanda og stjórnarformanni Microsoft, í áraraðir.

Netútgáfa breska dagblaðsins Guardian segir eignir Slims, sem er 67 ára ekkjumaður af líbönskum ættum og eigandi fjarskiptafyrirtækis, flugfélags, netfyrirtækis og tóbaksfyrirtækis í Mexíkó og Suður-Ameríku, svo eitthvað sé nefnt, hafa vaxið sérstaklega mikið á síðastliðnum 14 mánuðum og metur þær nú á 53,1 milljarð dala. Það jafngildir hvorki meira né minna en 3.488 milljörðum íslenskra króna.

Á lista bandaríska tímaritsins Forbes í mars síðastliðnum voru eignir Buffetts metnar á 52 milljarða dali, jafnvirði rúmra 3.416 milljarða íslenskra króna. Á sama tíma voru eignir Carlos Slims metnar á 49 milljarða dali, 3.219 milljarða íslenskra króna.

Til samanburðar mat Forbes eignir Bill Gates á 56 milljarða dali, jafnvirði 3.679 milljarða íslenskra króna.

Eignir Slims hafa aukist ár frá ári. Þannig jukust þær um 19 milljarða dali á milli áranna 2006 til 2007. Guardian bendir hins vegar á að þær hafi aukist um rúma fjóra milljarða dali, 263 milljarða íslenskra króna, frá því listinn var tekinn saman síðast og nemi þær nú 53,1 milljörðum dala.

Slim byggði veldi sitt á arfi eftir föður sinn. Hann komst hins vegar ekki í álnir fyrr en hann keypti mexíkóska símafyrirtækið Teléfonos de México við einkavæðingu þess árið 1990. Vegur hans hefur vaxið mikið upp frá því og rekur hann nú fjarskiptafyrirtæki víðs vegar í Suður-Ameríku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×